Skiptir ekki máli hvaðan góð hugmynd kemur, eða hvað?
Silja Rós Guðjónsdóttir
Silja Rós Guðjónsdóttir

Í gær sat undirrituð fund Fræðsluráðs nr. 310 þar sem að nýju var tekin fyrir tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um framtíðarsýn húsnæðismála GRV. Tillagan fólst í því stofnaður yrði starfshópur sem myndi hafa það hlutverk að skoða kosti þess að byggja við Hamarskóla þannig að þar rúmist starfsemi Tónlistarskólans og frístundavers, einnig að þar verði matar- og hátíðarsalur fyrir starfsemi skólanna. Markmið hópsins átti m.a. að vera að koma með lausnir fyrir skólana og frístundaver með það að leiðarljósi að koma á rekstrarhagræðingu, bæta aðstöðu Hamarsskóla, auka aðgengi að tónlistarnámi og koma í veg fyrir fækkun barna í tónlistarnámi, stytta vinnudag barnanna og ýta þannig undir samverustundir fjölskyldunnar og almennt gera fræðsluumhverfið aðgengilegra fyrir börn. Málið var upphaflega lagt fyrir á fundi fræðsluráðs nr. 309 þar sem fulltrúar meirihluta tóku jákvætt í tillöguna en lögðu til frestunar til næsta fundar.

Á fundinum í gær bjóst ég því við því að tillagan myndi hljóta brautargengi en annað kom á daginn. Meirihlutinn hafnaði tillögunni, að því er virðist einungis til þess að leggja fram nánast nákvæmlega sömu tillögu. Ég get ekki annað en furðað mig á þessum vinnubrögðum, sérstaklega í ljósi þess að í aðdraganda kosninga ritar Njáll Ragnarsson oddviti Eyjalistans og formaður bæjarráðs að minnsta kosti í tvígang að það skipti nú engu máli hvaðan góðar hugmyndir kæmu. Orðrétt segir hann í grein sinni 23.maí “Við heitum því að styðja við öll góð mál er til framfara horfa fyrir bæjarfélagið og skiptir þá ekki máli hver kom fyrst fram með hugmyndina því allar góðar hugmyndir þarf að ræða og koma í framkvæmd” þetta endurtekur hann í grein sinni daginn eftir “Við höfum viljað og við ætlum áfram að vinna að öllum góðum málum er til framfara horfa fyrir bæjarfélagið. Við munum ekki fara í keppni um það hver kemur fyrstur með góðar hugmyndir. Sjálfsdýrkun okkar er ekki á því stigi að við getum ekki sameinast um góð mál.” Við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins studdum að sjálfsögðu tillögu meirihlutans varðandi þetta mál, enda nánast samhljóða þeirri tillögu sem við höfðum lagt fram, enda er það ekki einungis í orði þegar við segjumst styðja góð mál.

Að gefnu tilefni
Fyrst ég er nú byrjuð að hripa hér eitthvað niður þá er ágætt að taka það fram að formaður bæjarráðs fór með ósannindi í grein sinni “Ólgan í pólitíkinni”. Þar heldur hann því fram að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í fræðsluráði mæti á fundi án þess að svo mikið sem kynna sér fylgigögn, hann bætir svo við að við höfum ekki viljað kynna okkur ákveðin gögn þar sem þau voru ekki frá “réttum aðilum”. Ég tel mig því knúna til þess að leiðrétta þessar rangfærslur og koma því á framfæri að undirrituð og Ingólfur Jóhannesson sem situr með mér í fræðsluráði fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins höfum ávallt kynnt okkur málin vel og farið í sameiningu yfir þau fylgigögn sem fylgja með fundarboði fyrir hvern fund. Það er hins vegar ekki hægt að kynna sér gögn sem ekki fylgja með fundarboði eða veita ekki fullnægjandi upplýsingar til að hægt sé að taka upplýsta ákvörðun. Fullyrðingar formanns bæjarráðs um fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í fræðsluráði eru því ekki réttar og að halda því fram að við komum óundurbúin á fund er bæði dónaskapur og lygi og ekki formanni bæjarráðs til framdráttar. Að birta grein fulla af ósannindum og upphrópunum og enda hana svo á að spurja hvort við ættum nú ekki öll að róa í sameiningu um lygnan sjó? Ég persónulega tel þetta vera mjög einkennilega leið til að róa að því markmiði.

Ég harma það að meirihlutinn hafi hafnað tillögu okkar en fagna því jafnframt að vinnan við þetta stóra og mikilvæga verkefni mun nú fara af stað. Þetta mun vera fyrsta skref í átt að betri þjónustu Hamarskóla, Tónlistarskóla og frístundavers sem eru frábærar fréttir fyrir fjölskyldufólk í Vestmannaeyjum sem og aðra bæjarbúa.

Silja Rós Guðjónsdóttir
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í fræðsluráði

Nýjustu fréttir

Hvað gerist næst
Jóhann Ingi skipar þriðja sætið á lista Miðflokksins
Líflegur framboðsfundur Eyjafrétta – upptaka
Herjólfur fer næstu ferðir til Þorlákshafnar
Sterk hagsmunagæsla
Hildur Rún skipar fjórða sæti á lista Eyjalistans 
Gústav Axel með kraftmikinn sjávarréttaseðil á Einsa Kalda á MATEY
Öflug menning mótar lífið
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.