Skjöldur – Tímamót - Ráðstefna aðeins fyrir karla
Síðustu ár hafa konurnar átt sviðið en nú gæti leikurinn farið að jafnast.

Næstkomandi laugardag, 19. október verður haldin í fyrsta sinn karlaráðstefnan Skjöldur á vegum Visku – fræðslu og símenntunarmiðstöðvar Vestmannaeyja. Þátttaka fór fram úr björtustu vonum en karlmenn bæði í Vestmannaeyjum og fastalandinu tóku vel við sér og mæta.

Formleg dagskrá hefst klukkan 13:00 og stendur fram á kvöld. Ráðstefnan verður haldin í Sagnheimum með erindum Martins Eyjólfssonar, Eyjamanns og ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu, Mána Péturssonar fjölmiðlamanns og Þorsteins Bachmann leikara.

Á milli klukkan 17.00 og 19.00  verður smakkupplifun og happy hour á Brothers Brewery en þaðan fara menn svo á Einsa kalda þar sem Einar Björn verður með geggjaðan borgara og ískaldan drykk.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Visku en ráðstefnan markar tímamót því sennilega er hún sú fyrsta sem beinist eingöngu að körlum. Síðustu ár hafa konurnar átt sviðið en nú gæti leikurinn farið að  jafnast.

Nýjustu fréttir

Emil og félagar í U17 áfram í næstu umferð undankeppni EM 2027
Íris hvetur þingmenn til að skipuleggja ferðina út frá „löngu leiðinni“
Göngustígur kominn að Sjónarhorni Flakkarans
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar síðdegis
Dýpkuðu 32 þúsund rúmmetra við Landeyjahöfn
Logn og bros á Stórhöfða
Slökkviliðsstjóri söðlar um eftir tíu ár í starfi
Útlit fyrir breyttar siglingar Herjólfs næstu daga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.