Skjót viðbrögð skiptu sköpum
Lögreglan hafði í ýmis horn að líta í liðinn viku enda töluvert um að fólk var að hafa samband vegna týndra muna eftir �?jóðhátíðina. Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum enda líklegt að fólk hafi verið búið að fá nóg af skemmtunum í bili a.m.k. Eitthvað var þó um að kvartað væri yfir hávaða frá heimahúsum.
Laust eftir hádegi sl. föstudag var lögregla kölluð að sundlaug Vestmannaeyja en þarna hafði þriggja ára barn verið hætt komið eftir að hafa verið í kafi rúma mínútu. Sundlaugagestir sem þarna voru nálægt bruðgust skjótt við og hófu lífgunartilraunir sem gengu að óskum. Stúlkan var í framhaldi af þessu flutt á sjúkrahús Vestmannaeyja og síðan með sjúkraflugi á sjúkrahús í Reykjavík til frekari skoðunar. Er ljóst að þarna mátti litlu muna að illa færi en skjót viðbrögð sundlaugagesta, starfsmanna sundlaugarinnar og annarra viðbragðsaðila skiptu sköpum.
Eitt fíkniefnamál kom upp í vikunni en um var að ræða smáræði af ætluðu amfetamíni sem hafði greinilega orðið viðskila við eiganda sinn, en efnið fannst á hafnafsvæðinu.
Eitt umferðaróhapp var tilkynnt lögreglu í liðinni viku en um var að ræða minniháttar óhapp. Engin slys urðu á fólki og lítið tjón á ökutækjum.

Nýjustu fréttir

Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Glódís Dúna valin í lokahóp U17 fyrir undankeppni EM
Konunglegt drama í Sagnheimum
Neistinn úr Eyjum skilar árangri í Kópavogi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.