Skólagjöld áfram meðal lægstu á landinu

Ný verðkönnun á skóladagvistun og skólamat hjá ASÍ var birt í dag. Heildargjöld fyrir skóladagvistun og skólamat hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins hækkuðu í öllum tilvikum milli ára en voru alltaf um eða undir 2,5% nema í tilviki Seltjarnarness þar sem gjöldin hækkuðu mest, um 10,1%. Hækkunin nemur 3.875 kr. á mánuði eða 34.875 kr. á ári miðað við 9 mánaða vistun. Þess má geta að gjöldin á Seltjarnarnesi voru þau hæstu meðal þeirra 15 sveitarfélaga sem úttektin nær til fyrir breytinguna og eru það enn.

Minnstu hækkanir á gjöldum fyrir skóladagvistun og skólamat voru í Mosfellsbæ en næst lægstar í Vestmannaeyjum.

Mikill munur er á heildargjöldum fyrir skóladagvistun og skólamat milli sveitarfélaga en 68% eða 17.157 kr. munur er hæstu gjöldunum sem eru á Seltjarnarnesi, 42.315 kr. og þeim lægstu í Fjarðarbyggð, 25.158 kr. Munurinn á hæstu gjöldunum og þeim lægstu er því 154.413 kr. á ári.

Vestmannaeyjar eru í 3. sæti yfir þau sveitarfélög sem mæld eru þegar skoðað er hvar gjöld eru lægst á skóladagvistun, hressingu og skólamat.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.