Skólasetning GRV fór fram í morgun
Grunnskóli Vestmannaeyja var settur í morgun

Skólasetning Grunnskóla Vestmannaeyja fór fram í morgun og er skólastarfið nú að hefjast á ný eftir sumarfrí. Nemendur og starfsfólk komu saman við skólasetninguna og mörkuðu þannig upphaf nýs skólaárs.

Athöfnin fór fram í Íþróttamiðstöðinni þar sem skólastjórnendur settu skólann formlega. Farið var yfir það helsta sem fram undan er á komandi vetri, breytingar á starfsmannahaldi voru kynntar og fjallað um verkefnið „Kveikjum neistann“. Jarl tók einnig lagið við athöfnina og lífgaði upp á stundina.

Að skólasetningunni lokinni héldu nemendur yfir í skólabyggingarnar. Þar fór hver bekkur í sína heimastofu, hitti kennara sína og fékk fyrstu upplýsingar um skólastarfið fram undan.

Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, var á staðnum og fangaði stemninguna við upphaf skólaársins.

Nýjustu fréttir

ÍBV með öruggan sigur á HK
Malbikað á fimm stöðum í næsta veðurglugga
Herjólfur til Þorlákshafnar síðdegis og í fyrramálið
Þéttsetið á tónleikum Júníusar Meyvant í Alþýðuhúsinu
Vilja gefa Blátind með meðgjöf
Eyjakonur sækja HK heim í dag
Rúmlega þriggja metra dýpi í Landeyjahöfn – siglingar háðar sjávarföllum
Nærri 8.500 gestir sóttu IceFish
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.