Sköpunarhúsið áfram opið í sumar 
Sköpunarhúsið verður áfram opið í sumar.

Fyrsti hluti Sköpunarhússins, sem sett var á laggirnar fyrr á þessu ári, verður áfram opið í sumar fyrir ungmenni á aldrinum 13–20 ára. Markmiðið með Sköpunarhúsinu er að skapa vettvang fyrir ungt fólk til að þróa tónlistaráhuga sinn, prófa sig áfram í upptökum og kynnast tónlistarvinnslu í skapandi og öruggu umhverfi.

Sköpunarhúsið sem staðsett er í Féló verður opið frá mánudegi til fimmtudags á milli klukkan 16:00 og 20:00 í sumar.

Í framtíðinni er stefnt að því að tengja fleiri greinar sköpunar við Sköpunarhúsið, svo sem myndlist, myndbandsgerð, grafík og hönnun. Með því verður skapaður vettvangur þar sem hægt verður að fullklára verkefni og bæta aðgengi fyrir upprennandi listamenn í sem fjölbreyttustum listgreinum. Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja skipaði árið 2023 starfshóp vegna sköpunarhúss. Í hópnum sitja Gísli Stefánsson, Hildur Rún Róbertsdóttir, Heba Rún Þórðardóttir, Erna Georgsdóttir og Arnar Júlíusson.

Þeir sem hafa áhuga geta einfaldlega mætt á opnunartíma og kynnt sér aðstöðuna og möguleikana sem þar eru í boði.

Nýjustu fréttir

Aron Valtýsson – Hleypur maraþon fyrir Krabbavörn Vestmannaeyja
Millet-gengið tekur Eyjar alltaf með trompi
Páll aftur á Sprengisandi – Beint í djúpu laugina
Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika
Fótboltamaðurinn Bjarki Björn Gunnarsson er íþróttamaður mánaðarins
Veðurblíðan í Eyjum í sumar á sér fáar hliðstæður
Fjölbreytt námskeið hjá Visku í haust
Myndlistargyðjan var alltaf í fyrsta sæti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.