Skötuveisla sem stendur undir nafni
Feðgarnir Sigurfinnur og Sigurfinnur létu sig ekki vanta.

Upphaf skötuveislu sjómannadagsráðs að morgni sjómannadags má rekja til Árna Johnsen og Dóru konu hans sem í mörg ár buðu ráðinu og fleiri gestum til veislu að Höfðabóli.

Boðið var upp á skötu og saltfisk með öllu tilheyrandi og berjasúpu með rjóma á eftir. Hátíðlegra gat það ekki orðið. Nú er Árni fallinn frá og breyttar aðstæður kalla á ný úrræði.

Í nokkur ár hefur veislan verið haldin á veitingastaðnum Sælandi þar sem vertinn, Hallgrímur Rögnvaldsson og Ríkharður Zóega Stefánsson, sjómaður ársins að mati Tíguls sjá um matargerð og framreiðslu.

Þeim brást ekki bogalistin og var að venju mikið fjör í veislunni sem heppnaðist vel að venju.

Að skötuveslunni lokinni var komið við hjá hjá Kára á Kránni þar sem í boði var kaffi og koníak.

Myndir Óskar Pétur.

 

Nýjustu fréttir

85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.