Skráning hafin í Lífshlaupið
lifshlaup_mynd_net

Skráning er hafin í Lífshlaupið 2024 – landskeppni í hreyfingu, og verður hún ræst í sautjánda sinn miðvikudaginn 7. febrúar nk.

Vinnustaðakeppnin stendur frá 7. – 27. febrúar en grunnskóla- og framhaldsskólakeppnin frá 7. – 20. febrúar.

Það er því um að gera að skrá sig og huga að því hvað vinnustaðurinn eða skólinn getur gert til þess að virkja sem flesta til þátttöku. Að sjálfsögðu er hægt að notast áfram við sitt notendanafn frá fyrri keppnum og um að gera að hafa samband ef einhver vandræði koma upp varðandi það.

Við vekjum athygli á því að ekki þarf að skrá inn vinnustaði sem hafa áður verið með, nöfn fyrirtækja má finna í flettilistanum í skrefinu “Ganga í lið” eða “Stofna lið”. Endilega athugið hvort ykkar vinnustaður sé ekki örugglega skráður áður en þið stofnið vinnustaðinn aftur. Hins vegar þarf að stofna ný keppnislið undir vinnustaðnum og ahuga hvort að starfsmannafjöldi sé réttur. Ef breyta þarf starfsmannafjölda látið vita á netfangið lifshlaupid@isi.is og við kippum því í liðinn. Liðsstjóri þarf núna að samþykkja þá aðila sem vilja ganga í þeirra lið.

Sama á við um grunn- og framhaldsskólana. Allir skólar landsins ættu að vera í flettilistanum en þó þarf að stofna bekkina inn aftur. Það má gera á auðveldan hátt með excel innlestri.

Allar upplýsingar má nálgast hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands í síma 514-4000 eða með fyrirspurn á netfangið lifshlaupid@isi.is

Við bendum einnig á Facebook-síðu og Instagram-síður Lífshlaupsins, segir í frétt á vef Lífshlaupsins.

Nýjustu fréttir

Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun
Meistaramót GV hefst á morgun
Ölduhæð raskar samgöngum – aðeins ein ferð farin það sem af er deginum
Myndasyrpa frá göngumessu
Myndband | 16 ára Eyjakona stefnir hátt í rallýcrossi
Eva Magnúsdóttir – Félagslífið stóð upp úr
Vilja herða reglur við Surtsey
Stefnir á eina ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.