Skráning barna í söngkeppni á Þjóðhátíð 2018 er opin til kl. 22:00 miðvikudaginn 25. júlí 2018 eða þar til að hámarksfjölda þátttakenda er náð.
Skráð er í tvo aldursflokka. Í yngri flokknum eru börn fædd árið 2010 eða yngri og í eldri flokki eru börn fædd 2005 – 2009. Skráning er á rafrænu formi þetta árið og þarf að hafa Google reikning til að fara í gegn um skráninguna. Ef skráningaraðili hefur ekki slíkan aðgang er auðvelt að nálgast hann í gegnum google.com eða gmail.com svo dæmi séu tekin.
Skila þarf almennum upplýsingum um þátttakendur og forráðamenn ásamt hljóðskrá (mp3, wma, wav o.s.frv) eða tengli af Youtube, Spotify eða álíka miðli.
Skráning fyrir börn fædd 2010 og síðar
Skráning fyrir börn fædd 2005 – 2009
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.