Skuldar Vestmannaeyjabæ yfir 800 milljónir
ljosleidari_thjotandi-3.jpg
Ljósleiðari lagður. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Eygló eignarhaldsfélag ehf., dótturfélag Vestmannaeyjabæjar, skuldar bænum 801 milljón króna vegna uppbyggingar ljósleiðarakerfis í Vestmannaeyjum. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins fyrir árið 2024.

Innviðir félagsins voru nýverið seldir úr félaginu til Mílu sem keypti þá fyrir 705 milljónir, fjárfestingu sem nam 750 milljónum en einnig tapast 50 milljónir í vaxtatekjur. Njáll Ragnarsson er stjórnarformaður Eygló eignarhaldsfélags.Njall R Cr

Tapar bærinn á fjárfestingunni?

Aðspurður hvort bærinn tapi tæplega 100 milljónum á uppbyggingunni segir Njáll að skuldir félagsins séu um 800 milljónir samkvæmt ársreikningi, en heildarfjárfestingin sem Eygló hefur ráðist í sé um 750 milljónir.

„Mismunurinn er að stærstum hluta kostnaður við lánalínu frá Vestmannaeyjabæ sem ber vexti tengda stýrivöxtum Seðlabankans auk álags. Í því lánaumhverfi sem ríkt hefur síðustu ár hefur bærinn því borið töluverðan fjármagnskostnað. En fjárfestingin sjálf nemur um 750 milljónum og það er í raun það sem Míla kaupir.“

„Eitt af því sem ég er hvað stoltastur af”

Spurður um rekstur félagsins fyrir söluna segir Njál að það séu um 700 áskriftir í mánuði í gegnum kerfi félagsins. „Eftir því sem tengingum fjölgar, fjölgar áskriftum að sama skapi.“ Hann segir jafnframt mikla ánægju með að samningar hafi tekist.

„Ég er afskaplega ánægður með það að salan til Mílu hafi gengið eftir og að bærinn geti með þessum hætti losað fjármagn sem nýtist í innviðauppbyggingu sveitarfélagsins. Nú hefur Míla tekið boltann og ég hef mikla trú á því að þeir muni sinna bæjarbúum með bravör. Þeir hófu strax að leggja kerfi í þau hverfi sem Eygló átti eftir, og hafa í hyggju að efla kerfið enn frekar og auka hraðann meira en Eygló hafði ráðgert.“

Njáll bendir á að sveitarfélög sinni almennt ekki uppbyggingu eða rekstri slíkra kerfa. „Ég fann mjög sterkt á eigin skinni og frá íbúum að skortur á ljósleiðara var farinn að há ekki bara einstaklingum heldur atvinnulífi bæjarins. Þessi uppbygging var því bráðnauðsynleg og er eitt af því sem ég er hvað stoltastur af að hafa komið að á því sjö og hálfa ári sem ég hef setið í bæjarstjórn.“

Sjá einnig: Innviðir Eyglóar seldir á 705 milljónir

Nýjustu fréttir

Herjólfur siglir til Landeyjahafnar síðdegis
Þórunn Pálsdóttir er Eyjamaður mánaðarins
MATEY: Vilhjálmur Sigurðarson með fágaðan og frumlegan seðil á Næs
Leita að fyrsta sigrinum gegn sterku liði Víkinga
Kíkt inn á kosningavökur framboðanna
Lokatölur: Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meirihluta
Fimm menn hjá D-lista samkvæmt fyrstu tölum
Kíkt í kosningakaffi framboðanna – myndir
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.