Skuldir Golfklúbbs Vestmannaeyja lækka mikið
Aðalfundur Golfklúbbs Vestmannaeyja fór fram 29. desember síðastliðinn. Helgi Bragason var endurkjörinn sem formaður og aðeins varð ein breyting á stjórn þegar Ragnar Baldvinsson hætti en í hans stað kemur Hörður Orri Grettisson. Daglegur rekstur klúbbsins gekk vel og hækkuðu tekjur um 15 % á milli ára. Hagnaður var af rekstri klúbbsins upp á tæpar sex milljónir króna. Þá náðist að lækka langtímaskuldir verulega. Ákveðið var að hækka árgjöldin um 6%, eða úr 53.000 kr. í 56.000 krónur. Þetta kemur fram á vefnum iGolf.is.

Nýjustu fréttir

Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.