Söfn og sýningar á Suðurlandi
Á dögunum var sett af stað eitt áhersluverkefni Sókaráætlunar Suðurlands á vegum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS). �?að eru samtals 14 söfn og/eða sýningar á Suðurlandi sem taka þátt í verkefninu. Um er að ræða verkefni þar sem söfnin/sýningarnar hanna og þróa fræðsluefni fyrir gesti á grunnskólaaldri. Afurðinni er ætlað að efla fræðsluþátt safnanna/sýninganna sem og að efla möguleika þeirra til vaxtar, þróunar og styðja við viðkomandi safn eða sýningu. Meginmarkmið með verkefninu er að laða að gesti á grunnskólaaldri, fjölskyldur og grunnskóla. Afurðin verður hönnuð með grunnskólaaldur í huga og getur fræðsluefnið verið fjölbreytt og með ólíkar áherslur í upplifun, miðlun og fróðleik þar sem gestir geta jafnvel unnið verkefni á staðnum eða tekið þátt í því meðan á heimsókn þeirra stendur. Verkefnið tengist flestum meginþáttum í Sóknaráætlun Suðurlands og þá sérstaklega markmiðunum um að menning og listir fái aukið vægi í uppeldi og kennslu barna, sem og að auka samstarf og verkefnaþróun sem leiði til eflingar og sýnileika menningarlífs á Suðurlandi.
Vinnan við verkefnin er þegar hafin og ráðgert er að söfnin/sýningarnar kynni afurðir sínar í lok maí 2018 og í framhaldinu verður efnið aðgengilegt hjá öllum þeim sem tóku þátt.
Söfnin sem taka þátt eru:
Byggðasafn Árnesinga
Sagnheimar Vestmannaeyjar
Sæheimar Vestmannaeyjar
Skálholt
Hveragarðurinn Hveragerði
Skjálftinn 2008 Hveragerði
Menningarmiðstöðin Höfn
Listasafn Árnesinga
Skógasafn
Skaftfellingur
Íslenski bærinn
�?orbergssetur Hala í Suðursveit
Njálurefill
Vatnajökulsþjóðgarður
Meðfylgjandi mynd var tekin á fyrsta kynningarfundi verkefnisins en á myndinni eru auk aðstandenda verkefnisins, fulltrúar Byggðasafns Árnesinga, Sagnheima Vestmannaeyja, Sæheima Vestmannaeyja, Skálholts og Listasafns Árnesinga ásamt �?órði Frey Sigurðssyni sviðsstjóra �?róunarsviðs SASS. Auk þeirra eru á myndinni Eva �?engilsdóttir listakona og Heiða Linda Sigurðardóttir listgreina kennari sem voru með erindi á fundinum.

Nýjustu fréttir

Baldur verður áfram í Eyjum
Eyjakonur í undanúrslit eftir framlengdan leik gegn FH
Hátíðarhöld 17. júní færð inn í Íþróttamiðstöðina
Sjómannsfjölskyldan mín
Topplið FH mætir ÍBV í bikarslag á Hásteinsvelli
Vertíðin 2026
Skoðar Vestmannaeyjar fyrir mögulega fóðurverksmiðju
Herjólfur III bíður enn eftir haffærisskírteini
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.