Spáð í spilin fyrir HM karla í handbolta
Sandra Erlingsdóttir

Ljósmynd: Hafliði Breiðfjörð. 

Nú er Heimsmeistaramót karla í handbolta hafið, og spenna ríkir meðal íslenskra handboltaáhugamanna. Í kvöld mun Ísland leika sinn fyrsta leik á mótinu, sem hefst klukkan 19:20. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV. Við heyrðum í Söndru Erlingsdóttur, landsliðskonu í handbolta og fengum að spurja hana nokkura spurninga varðandi mótið.

Hvernig telur þú að íslandi muni ganga í riðlakeppninni? Ég held að þeir muni bara rúlla þokkalega þægilega í gegnum hana. Þeir þurfa bara að klára slóvenina.

Telur þú það muni hafa mikil áhrif á liðið að það vanti nokkra lykilmenn í liðið? Þeir eru með svo ótrúlega stóran og flottan hóp svo ég hef enga trú á því.

Hvaða lið í riðlinum telur þú vera helstu ógnirnar fyrir Ísland? Það er klárlega Slóvenía.

Hverjir eru helstu styrkleikar íslenska landliðsins að þínu mati? Þetta eru allt ótrúlega hæfileika ríkir strákar og með mikla handbolta getu. Svo já ætli það sé ekki bara handboltahæfileikar.

Hvernig finnst þér að sjá Elliða Snæ Viðarsson sem fyrsta Eyjamannin til að vera fyrirliði íslenska landsliðsins? Það er bara frábært og á hann það svo sannarlega skilið. Ég er viss um að hann muni skila sínu hlutverki vel þar.

Áfram Ísland!

Nýjustu fréttir

Bókasafnið komið í hrekkjavökubúning
Bleikur blær og ABBA-tónar hjá Krabbavörn
Nýjar upplýsingar vörðuðu forsendur verðfyrirspurnarinnar
Eyjamenn geta haft úrslitaáhrif á fallbaráttuna
Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Átta marka tap hjá ÍBV gegn Val
ÍBV tryggði sér þriðja sætið með sigri á Stjörnunni
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum – af hverju ekki?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.