Það er nóg um að vera hjá fimleikafélaginu Rán þessa dagana og spennandi vetur fram undan. Æfingar eru komnar á fullt og undirbúningur hafinn fyrir fyrsta mót vetrarins sem fram fer í lok nóvember.

Elstu tveir flokkar félagsins hafa þegar fengið nýjan dans sem þjálfararnir Sigurbjörg og Ragnheiður sömdu fyrir veturinn. Dansinn er nú tilbúinn og næstu vikur fara í að fínpússa atriðið fyrir mótið.
„Við erum mjög spenntar að fara með nýja dansinn á mót í nóvember. Hann er alveg klár og nú snýst þetta bara um að fínisera allar hreyfingar. Stelpurnar eru orðnar ótrúlega flottar,“ segir Sigurbjörg, þjálfari hjá félaginu.
Undirbúningurinn fyrir veturinn hófst þó strax í ágúst þegar landsliðsþjálfari kom í heimsókn til Eyja. Hann stýrði æfingum hjá stelpunum auk þess að fara yfir reglur og áherslur með bæði iðkendum og þjálfurum.
Aðstaða félagsins hefur einnig fengið góða viðbót en Rán festi nýverið kaup á nýju fibertrampólíni sem opnar á fleiri möguleika á æfingum.
„Nýja trampólínið gefur stelpunum tækifæri til að æfa fleiri og tærari stökk. Það hjálpar þeim líka að öðlast meira öryggi og þora að prófa sig áfram,“ segir Sigurbjörg.
Eftir mótið í nóvember verður svo lítið gefið eftir því þá tekur við undirbúningur fyrir einn af föstu liðum vetrarins, hina árlegu jólasýningu félagsins.