Spretthópi falið að meta Kveikjum neistann
Spretthopur Kveikjum Neistann Stjr 2
Einar Gunnarsson, skólastjóri Barnaskólans í Vestmannaeyjum og Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað spretthóp sem ætlað er að meta stöðu tilraunaverkefnisins Kveikjum neistann, árangur þess og tækifæri og koma með tillögur að möguleikum í þróun verkefnisins í þágu barna hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu.

Verkefnið, sem Grunnskóli Vestmannaeyja hóf haustið 2021, miðar að heildstæðri nálgun á skólastarfið. Áhersla er lögð á grunnfærni í lestri, náttúrufræði og stærðfræði, hugarfar, hreyfingu og áhugahvöt, þar sem barnið er ávallt í fyrirrúmi.

Niðurstöður PISA kannana undanfarin ár hafa sýnt fram á nauðsyn þess að bregðast við stöðu íslenskra barna, m.a. í lesskilningi og stærðfræði. Guðmundur Ingi Kristinsson, barna- og menntamálaráðherra, hefur bent á að kennarar þurfi öflug verkfæri til að takast á við þennan vanda. Kveikjum neistann er einmitt eitt slíkt verkfæri.

Í spretthópnum eru:

  • Tryggvi Hjaltason, formaður og fulltrúi ráðherra
  • Óskar Haukur Níelsson, sérfræðingur í mennta- og barnamálaráðuneytinu
  • Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja
  • Einar Gunnarsson, skólastjóri Barnaskólans í Vestmannaeyjum
  • Anna Rós Hallgrímsdóttir, skólastjóri Hamarsskóla í Vestmannaeyjum
  • Helga Sigrún Þórsdóttir, deildastjóri fræðslu- og uppeldissviðs í Vestmannaeyjum
  • Ingunn Ásta Sigmundsdóttir, sérfræðingur í grunnskólamálum Reykjavíkurborgar
  • Guðbjörg Rut Þórisdóttir, læsisfræðingur hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Með hópnum starfar einnig starfsmaður mennta- og barnamálaráðuneytisins.

Hópurinn mun skila ráðherra niðurstöðum með stöðutöku og ráðleggingum um næstu skref fyrir 1. júlí nk.

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.