Skiptitaskan mikilvæg þessa hátíðina

Á þjóðhátíðinni eiga allir sínar hefðir, uppáhaldslög og minningar sem gera hátíðina einstaka. Við heyrðum í nokkrum Eyjamönnum og fengum þau til að svara nokkrum spurningum um þjóðhátíðina, tilhlökkunina, uppáhaldshefðirnar og það sem má ekki vanta í tjaldið.

Nafn: Ólöf María Stefánsdóttir

Fjölskylda: Daði Magnússon og Dagur Daðason.

Hvernig leggst þjóðhátíðin í þig? Mjög vel! Við erum með fullt hús af gestum ofan af landi og þetta verður fyrsta þjóðhátíð sonar okkar, svo tilhlökkunin er mikil.

Hversu oft hefur þú farið á þjóðhátíð? Ég hef bara farið á þrjár en ég missti af nokkrum útaf covid sem ég er að vinna í að bæta upp fyrir.

Hvað stendur upp úr á hverju ári? Samveran með fjölskyldum og vinum og laugardagskvöldið hefur ekki klikkað hingað til!

Uppáhalds þjóðhátíðarhefð? Þjóðhátíðarsetningin og setningarkaffi í hvíta tjaldinu með fjölskyldunni.

Hvert er uppáhalds þjóðhátíðarlagið? Lífið er yndislegt.

Hvað má ekki vanta í hvíta tjaldið? Miðnætursnarl er mikilvægt og ætli það sé ekki skiptitaskan líka þessa þjóðhátíðina.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði með sex mörkum á Akureyri
Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn
Frá borholusjó til flögusalts
46 íbúðir í byggingarferli í Eyjum – 20 fullbúnar en ónotaðar
Júníus Meyvant með tónleika í Alþýðuhúsinu
Fyrsti leikurinn undir stjórn Bergvins
Loppumarkaður á Heiðarvegi um helgina
Opna fjöldahjálparstöð í Arnardrangi á laugardag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.