Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins.
Nafn: Guðni Hjörleifsson
Aldur: 68 ára
Fjölskylda: Giftur Rósu Sveinsdóttir og saman eigum við þrjú börn, Ástu Björk, Hjörleif og Víði Þór og fimm barnabörn, Magnús, Kristófer Dag, Krumma, Þorvald Guðna og Rósu.
Menntun og störf: Ég er lærður netagerðameistari og hef unnið við það í sirka 40 ár, þar af 33 ár hjá Berg-Huginn þar sem ég starfa núna. Að auki rak ég kvikmyndahús í Vestmannaeyjum á árunum 1989 – 2000 og sat í stjórn meistaraflokks ÍBV í fótbolta á árunum 1994 – 2001.
Fyrri afskipti af stjórnmálum: Ég hef verið í Miðflokknum frá stofnun hans og var í 4. sæti í þingkosningunum 2021 fyrir Miðflokkinn í suðurkjördæmi. Ég er varaformaður í stjórn suðurkjördæmis og í stjórn Vestmannaeyjadeildar Miðflokksins.
Af hverju Miðflokkurinn? Ég vel Miðflokkinn því hann er með skýra stefnu og hefur verið staðfastur í sínum málum. Þá falla málefnin vel við mínar skoðanir og stefnu.
Hvaða málaflokka munt þú leggja áherslu á? Áhugi minn snýr að mestu leyti að samgöngumálum. Samgöngumál eru stór hluti af okkar samfélagi, þau efla alla framþróun hjá okkur eins og ferðaþjónustu, atvinnulíf og eru okkur íbúum Vestmannaeyja nauðsynleg til að sækja alls kyns þjónustu. Þá eru atvinnumál og uppbygging á íþróttastarfi og íþróttamannvirkjum með tilliti til allra hópa mér einnig mikilvæg og mun ég leggja áherslu á að börnin okkar hafi gott aðgengi að starfi og leik í frístundum, því það er besta forvörnin.
Hvernig sérðu framtíð Vestmannaeyja? Framtíðin er björt. En það er nauðsynlegt að við höldum ráðamönnum landsins við efnið, að þeir taki tillit til okkar sérstöðu og hugi meira að landsbyggðinni allri.
Hvað hefur þú fram að færa sem fulltrúi? Ég vil með framboði mínu vera í takt við vilja Eyjamanna, hlusta á tillögur og efla Eyjarnar. Þá mun ég nýta mín tengsl við þingmenn Miðflokksins og fleiri til að vinna að hagsmunum Vestmannaeyja í þinginu. Einnig vonast ég til að eiga gott samstarf við alla fulltrúa í eyjum því það er gott fólk sem er að bjóða sig í þetta.
Mín von er að hér verði byggð sem blómstri. En það mun gerast með bættum samgöngum í þágu allra.