Staðfest smit í Vestmannaeyjum orðin 66

Enn bætist í hóp smitaðra í Vestmannaeyjum og hafa þrjú smit bæst við í dag og eru staðfest smit í Vestmannaeyjum því orðin 66 talsins. Einn af þremur nýgreindum var þegar í sóttkví. Fjöldi þeirra sem hafa verið settir í sóttkví er orðinn 615 og hafa 254 lokið sóttkví. Þremur er batnað. Enn erum við á viðkvæmum tíma og gætum okkar að sjálfsögðu.

Á morgun hefst COVID-19 skimun í Vestmannaeyjum á vegum Íslenskrar erfðagreiningar í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Vestmannaeyjabæ. Skimunin fer fram 2.-4. apríl og eru Eyjamenn hvattir til að skrá sig hjá Íslenskri erfðagreiningu hið fyrsta á neðangreindri vefslóð https://bokun.rannsokn.is/#!/eyjar/login/

Aðgerðastjórn

Nýjustu fréttir

„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.