
Í vikunni tilkynnti Laxey að félagið hefði lokið farsælu hlutafjárútboði og undirritað alþjóðlegt sambankankalán.
Samkvæmt Bændablaðinu er um að ræða sambankalán uppá 220 milljónir evra eða tæplega 32.milljarða króna og heildarfjármögnun þriðja áfanga með hlutafé rúmlega 38 milljarðar.
Það sem gerir þennan áfanga enn merkilegri er að félagið gerir nú ráð fyrir að þetta verði í síðasta skiptið sem fjármagn verði sótt með auknu hlutafé.
En hvað í raun þýðir þetta ?
Flestir eiga nú ekki auðvelt með að tengja við upphæðir sem telja milljarða á milljarða ofan og hugtök eins og sambankalán nokkuð framandi.
En til að átta sig betur á þessu er ágætt að setja hlutina í eitthvert samhengi og reyna að átta sig á því hvers vegna svona viðskipti geta skipt sköpum fyrir framtíðar hagsæld samfélagsins í Vestmannaeyjum.
Til að safna saman 38.000.000.000kr þurfa allir Eyjamenn að leggja litlar 8.000.000kr í púkkið. Rekstartekjur Vestmannaeyjabæjar árið 2025 námu rúmlega 10 milljörðum.
Sem dæmi sótti Ísfélag Vestmanneyja sér sambærilega fjármögnun í fyrra. Um er að ræða eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, skráð í Kauphöll Íslands, stofnað árið 1901 og er elsta starfandi hlutafélag landsins með markaðsvirði yfir 125 milljarða !
Það að félag sem stofnað var árið 2021 fái sambærilega alþjóðlega fjármögnun og opni lánalínur í Vestmannaeyjum með þáttöku frá m.a Rabobank stærsta landbúnaðarbanka í heimi og DNB Carnegie stærsta banka Noregs sem sérhæfir sig í sjávarútvegi, er gríðarleg viðurkenning fyrir samfélagið í heild og afrek sem fæstir átta sig á og mun án efa efla frekari atvinnu og innviðauppbyggingu í Vestmannaeyjum.
Laxey er því í dag komið á þann stað að vera leiðandi í landeldi í heiminum, í atvinnugrein sem skiptir sköpum fyrir þjóðarbúið þar sem hagvöxtur á mann er með allra mesta móti.
Það kemur því ekki á óvart að Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra hafi verið í Vestmannaeyjum að kynna sér aðstæður uppbyggingar hjá Laxey, fyrirhugaða uppbyggingu stórskipakants úti á Eiði og framgöngu Eyjaganga, en ríkisstjórn hennar kynnti í vor nýja atvinnustefnu fyrir Ísland, sem m.a. leggur áherslu á háframleiðnigreinar og stórfjárfestingar á landsbyggðinni.
Útflutningsverðmæti á hvert starf hjá Laxey í fullum rekstri stefnir í að vera 300.000.000kr á ári, það eru t.a.m 10 sinnum meiri útflutningstekjur á mann en voru hjá samstæðu Bláa lónsins stærsta ferðaþjónustufyrirtækis landsins árið 2025.
Vanfundinn er því sá staður sem tikkar eins vel í þessi box og Laxey ✅ og Vestmannaeyjar. ✅
Jóhann Halldórsson