Starfshópi falið að móta aðgerðaáætlun til að efla strandsiglingar
Fraktarar 07 2023
Gámaflutningaskip í Vestmannaeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, hefur skipað starfshóp um strandsiglingar við Ísland. Hlutverk starfshópsins verður að móta og leggja fram aðgerðaáætlun um leiðir til að efla strandflutninga á sjó, m.a. til þess að minnka álag á þjóðvegi landsins og draga úr umhverfisáhrifum. Starfshópnum er ætlað að skila aðgerðaáætlun fyrir 1. desember 2025. Þetta kemur fram í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu.

„Það er afar mikilvægt að efla strandflutninga að nýju. Nauðsynlegt er að flutningar á sjó umhverfis landið verði veigamikill hluti af vöruflutningum um landið til framtíðar. Öflugar strandsiglingar verða fyrir vikið mikilvægur þáttur í að vernda vegakerfið,“ segir Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra.

Langstærstur hluti vöruflutninga hér á landi fer fram með stórum bifreiðum um þjóðvegi. Álag á vegi hefur aukist hratt á undanliðnum árum, þ.m.t. umferð þungra vörflutningabíla, með auknum kostnaði  í viðhaldi vega.

Starfshópurinn er þannig skipaður:

  • Magnús Jóhannesson, formaður, án tilnefningar
  • Sóley Ragnarsdóttir, án tilnefningar
  • Katrín Pálsdóttir, án tilnefningar
  • Linda Björk Gunnlaugsdóttir, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
  • Benedikt S. Benediktsson, tilnefndur af Samtökum verslunar og þjónustu
  • Fannar Gíslason, tilnefndur af Vegagerðinni
  • Jón Gunnar Jónsson, tilnefndur af Samgöngustofu.

 

Starfshópnum er ætlað að vinna áfram með skýrslu sem Vegagerðin gerði fyrir innviðaráðuneytið um strandflutninga við Ísland og greina hvernig unnt sé að efla vöruflutninga með strandflutningum. Tillögur hópsins verða lagðar til grundvallar við frekari stefnumótun í málaflokknum, þ.m.t. í samgönguáætlun.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Þrótti R. á Hásteinsvelli
Stefnt að styttingu Hörgaeyrargarðs í lok september
Livey tekur við streymi Olísdeildarinnar
Kristín skipuð í nýtt embætti sýslumanns
Opinn fundur um þjóðaratkvæðagreiðsluna
ESB-aðild gæti fært störf og verðmæti úr landi að mati SFS
Eyjakonur geta endurheimt þriðja sætið
Færri íbúðir og minna byggingarmagn við Strandveg 44
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.