Stefnir í metfjölda milljónamæringa í desember
lotto-2.jpg
Einn miðanna sem hlutu 2. vinning í Jóker kvöldsins var keyptur á Bensínsölunni Kletti.

Karlmaður á besta aldri var einn með allar tölur réttar í Lottó um síðustu helgi. Hann keypti miðann í Happahúsinu í Kringlunni samkvæmt vana sem tryggði honum rétt tæpar 10 skattfrjálsar milljónir. Vinningshafinn var auðvitað himinlifandi en þó hógværðin ein þegar hann gaf sig fram á skrifstofu Íslenskrar getspár í dag og sagðist mögulega endurnýja bílinn á nýju ári, annað væri þó alveg óráðið en vinningurinn væri að sjálfsögðu mjög svo kærkomin sérstaklega svona síðustu helgi fyrir jól.

Þessi heppni bætir manninum í hóp þeirra óvenju mörgu sem orðið hafa milljónamæringar með því að spila í Lottó síðustu vikurnar fyrir jól en alls hafa sex manns verið með fyrsta vinning síðan 30. nóvember sl. Svo munu að lágmarki 28 milljónamæringar bætast við laugardaginn 28. desember þegar dregið verður í Milljólaleiknum.

Við óskum vinningshafanum innilega til hamingju og þökkum um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó, segir í tilkynningu frá Íslenskri Getspá.

Nýjustu fréttir

KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Handknattleiksdeild ÍBV með saltfisksölu í dag
Bókasafnið komið í hrekkjavökubúning
Bleikur blær og ABBA-tónar hjá Krabbavörn
Nýjar upplýsingar vörðuðu forsendur verðfyrirspurnarinnar
Eyjamenn geta haft úrslitaáhrif á fallbaráttuna
Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.