Mikil umsvif eru í botnfiskvinnslu Vinnslustöðvarinnar um þessar mundir. Áætlað er að taka um 350 tonn til saltfiskvinnslu í ágúst, sem er um þrefalt meira en í sama mánuði undanfarin ár. Þetta kemur fram í frétt á vef Vinnslustöðvarinnar.
„Það er gott að komast af stað aftur eftir rúmlega mánaðarlangt sumarstopp í fiskvinnslunni. Við byrjuðum strax eftir þjóðhátíð að pakka saltfiski og fengum svo fisk til vinnslu 7. ágúst. Síðan þá höfum við haft hráefni til vinnslu nánast alla daga,“ segir Sindri Viðarsson, sviðstjóri veiða og vinnslu hjá Vinnslustöðinni, aðspurður um upphaf fiskvinnslu eftir sumarstopp sem hófst í lok júní.
Framkvæmdir við uppsjávarvinnslu Vinnslustöðvarinnar hafa tafist og því var ekki unnt að hefja makrílvinnslu í tæka tíð.
„Það er mjög slæmt að missa makrílinn út. Við höfðum búið okkur undir makrílvertíðina og meðal annars boðað starfsfólk til vinnu vegna hennar. Sem betur fer hefur gengið vel að bæta upp makrílleysið með vinnslu á þorski og ufsa til söltunar.“
„Þessi líðandi ágústmánuður verður sá stærsti hjá okkur í botnfiskvinnslu í mjög langan tíma. Við áætlum að taka alls um 350 tonn til saltfiskvinnslu í ágúst. Það er um þreföldun miðað við sama mánuð undanfarin ár.“
Að sögn Sindra er auk þess áætlað að vinna rúmlega 100 tonn af hráefni hjá Hólmaskeri í Hafnarfirði, aðallega ýsu, þorsk og ufsa sem fara í frystar afurðir. Hráefnið kemur að stórum hluta af fiskmörkuðum víðs vegar um landið en einnig er afli farinn að berast af skipum Vinnslustöðvarinnar.
Botnfiskskip Vinnslustöðvarinnar hafa einnig verið í sumarstoppi en eru nú að hefja veiðar á ný. Sindri segir veiðar hafa farið vel af stað hjá Breka VE.
„Breki fór á veiðar strax eftir Þjóðhátíð og hefur nú þegar landað þrisvar. Þeir hafa verið á Vestfjarðamiðum þar sem afli hefur verið ágætur og landað í Grundarfirði til að ná sem mestum tíma til veiða. Aflinn hefur svo verið fluttur þaðan til vinnslu í Vestmannaeyjum og Hafnarfirði auk þess sem karfi og annar afli hefur farið í útflutning.“
Drangavík fór á sjó um síðustu helgi og er á veiðum. Kap á síðan að hefja netaveiðar um miðjan september.
Þar sem ekki varð úr makrílveiðum hafa uppsjávarskip Vinnslustöðvarinnar verið verkefnalaus frá maíbyrjun, þegar kolmunnaveiðum lauk. Þau munu hefja síldveiðar í september.
„Það verður því nóg að gera hjá okkur í haust. Til viðbótar við þetta allt erum við nú að færa saltfiskvinnsluna yfir í nýtt húsnæði, í nýbygginguna á svæði Vinnslustöðvarinnar,“ segir Sindri að lokum.