Eyjastúlkur sóttu heim Hauka í leik í fimmtu umferð Olís-deildar kvenna í kvöld.
Haukastúlkur byrjuðu leikin mun betur og náðu mjög fljótlega öruggu forskoti. ÍBV skoraði eingöngu sex mörk í fyrrihálfleik gegn sextán mörkum heimamanna.
Allt annað var að sjá til Eyjastúlkna í upphafi seinni hálfleiks og náði ÍBV að vinna muninn niður í fjögur mörk. Nær komust þær þó ekki og misstu Haukana frá sér aftur. Lokatölur 29-20 Haukum í vil.
Markahæst í liði ÍBV var Ester Óskarsdóttir með 6 mörk. Aðrir markaskorarar voru Arna Sif Pálsdóttir með 5, Karólína Bæhrenz Lárudóttir 3, Greta Kavaliuskaite 3, Sunna Jónsdóttir 2, Sandra Dís Sigurðardóttir 1 og Kristrún Ósk Hlynsdóttir 1.
ÍBV situr í þriðja sæti með fimm stig eftir fimm umferðir. Næsti leikur er gegn Fram í Framhúsinu sunnudaginn 21. október næstkomandi kl. 15.00.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst