Í dag klukkan 13:00 mun kvennalið ÍBV taka á móti Haukum í N1 deildinni í handbolta. ÍBV byrjaði árið mjög vel og lagði Stjörnuna að velli í Garðabæ en ÍBV er nú í fjórða sæti deildarinnar með átta stig, eins og Stjarnan og tveimur stigum á eftir HK. Haukar eru hins vegar í sjötta sæti deildarinnar með fjögur stig en Haukar töpuðu fyrir HK á heimavelli í síðustu umferð.