Sterk uppbygging og skýr framtíðarsýn
Kjartan Vídó

Aðsend grein

Kjartan Vídó

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins leggja áherslu á ábyrga þróun bæjarfélagsins sem tryggir bæði lífsgæði íbúa og sterka innviði til framtíðar. Fjölgun íbúa, breyttar þarfir samfélagsins og aukin tækifæri kalla á skýra stefnu og markvissa uppbyggingu.

Eitt af  því er að tryggja nægt framboð lóða fyrir fjölbreytt búsetuform. Með því mætum við þörfum ólíkra hópa, ungs fólks, fjölskyldna og eldri borgara og sköpum skilyrði fyrir heilbrigt og öflugt samfélag sem er aðlaðandi til búsetu.

Nýtt hverfi við Löngulág

Fjölgun íbúa kallar á aukna stoðþjónustu. Skólar, leikskólar, heilbrigðisþjónusta og önnur grunnþjónusta verða að vaxa í takt við samfélagið.

Á kjörtímabilinu ætlum við að hefja uppbyggingu á nýju og spennandi hverfi við Löngulá. Þar felast mikil tækifæri til að skapa nútímalegt og aðlaðandi íbúðarsvæði sem sameinar fjölbreytta byggð og vandað skipulag.

Bygging og rekstur sorporkustöðvar

Umhverfismál eru okkur ofarlega í huga. Við munum leita leiða til að draga úr kostnaði við sorpeyðingu og kanna möguleika á byggingu og rekstri sorporkustöðvar. Slík lausn gæti bæði verið hagkvæm og umhverfisvæn.

Hjartað slær í miðbænum

Við viljum efla miðbæinn, stuðla að öflugu mannlífi, styrkja verslun og þjónustu og skapa aðlaðandi umhverfi fyrir íbúa og gesti okkar. Með markvissri uppbyggingu getur miðbærinn orðið enn sterkari samkomustaður sem endurspeglar kraft og sérstöðu Eyjanna.

Við Sjálfstæðismenn vitum að skýr sýn, ábyrgar ákvarðanir og öflugar framkvæmdir skila raunverulegum árangri. Með þannig vinnubrögðum tryggjum við að Vestmannaeyjar verði eftirsóknarverður staður fyrir íbúa og gesti Eyjanna til framtíðar.

 

Kjartan Vídó

Höfundur skipar 6. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.

Nýjustu fréttir

Bókunarkerfi Herjólfs komið aftur í gagnið
Nám í fiskeldisfræði opnar margar dyr  
Nýtt blað Eyjafrétta komið út
Framboðin mætast í Eldheimum í dag
Fjölskylduafþreying í íþróttahúsinu
Sex ferðir í Landeyjahöfn á morgun
Ríkisstyrkt áætlunarflug til Eyja framlengt út mánuðinn
ÍBV á þrjá fulltrúa sem fara á Evrópumótið með u-18
viðburðir
Oddvitar 2026 Samsett
14. maí 2026
17:00
Opinn framboðsfundur Eyjafrétta í Eldheimum
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.