Stöndum með íslenskri framleiðslu
Hlynur Ólafsson, eigandi og bruggari The Brothers Brewery og Jóhann Guðmundsson eigandi og bruggmeistari

Samtök íslenskra handverksbrugghúsa skora á dómsmálaráðherra að leggja frumvarp um netverslun með áfengi fram á nýjan leik og tryggja íslenskum handverksbrugghúsum rétt til að selja gestum sínum vörur á staðnum.

Íslensk handverksbrugghús eru nú á þriðja tug talsins. Þau tryggja um 200 manns störf í sinni heimabyggð og skila tugum milljóna í skatttekjur á ári. Brugghúsin framleiða vandaðar og eftirsóttar íslenskar vörur, draga til sín fjölda íslenskra og erlendra gesta og eru mikil lyftistöng fyrir lítil samfélög í nærumhverfi sínu, sem nokkur teljast til brothættra byggða.

Breytingar fyrir umhverfið, neytendur og frumkvöðlafyrirtæki
Rekstrarumhverfi handverksbrugghúsa á Íslandi er erfitt vegna fámennis, verulega hárra opinberra gjalda og íþyngjandi löggjafar. Íslensk handverksbrugghús mega samkvæmt gildandi lögum hvorki selja gestum sínum vörur til að taka út af framleiðslustað, né í öðrum verslunum en áfengisverslunum ríkisins. Starfsemi ÁTVR hentar þörfum lítilla brugghúsa um margt illa, enda gætu þau sjálf sinnt hluta sölunnar betur og komið vörunni ferskari á markað. Þannig fengist hún nær framleiðslu með minnkuðu fótspori og á hagkvæmari hátt, með tilheyrandi jákvæðum áhrifum fyrir neytendur, umhverfið og afkomu brugghúsanna.

Erlendir aðilar mega nú selja íslenskum neytendum áfengi heim að dyrum í netverslun án takmarkana. Ef íslenskir framleiðendur vilja gera slíkt hið sama þurfa þeir að flytja vörur sínar til útlanda, til þess eins að þær verði fluttar heim aftur af erlendri netverslun með tilheyrandi kolefnisspori. Ljóst er að um óeðlilega mismunun er að ræða.

Covid-19 faraldurinn hefur haft mikil áhrif á rekstur íslenskra brugghúsa og mun hafa enn meiri áhrif í haust, samhliða hruni í ferðaþjónustu. Lagalegt jafnræði á sviði netverslunar og auknir möguleikar handverksbrugghúsa til beinnar sölu gætu því beinlínis orðið til þess að bjarga fjölmörgum frumkvöðlafyrirtækjum og þar með tryggja fjölda starfa um land allt og framtíðarskatttekjur.

Aukin áhersla á forvarnir
Breytingar þessar fela ekki í sér aukið aðgengi fólks undir lögaldri að áfengi, enda yrði það einungis selt á stöðum þar sem fólk á löglegum áfengiskaupaaldri má koma saman. Þá styðja samtökin strangar kröfur um eftirlit með aldri kaupenda. Í síðasta frumvarpi ráðherra var gert ráð fyrir leyfissviptingu og refsiábyrgð vegna ófullnægjandi aldurseftirlits. Samtökin fagna slíkum kröfum en benda á að engin slík ákvæði gilda um erlendar netverslanir. Loks telja samtökin mikilvægt að halda áfram öflugu forvarnarstarfi, sem sinna má enn betur ef tekjur af sölu áfengis í netverslun renna í vasa íslenskra skattgreiðenda, frekar en erlendra fyrirtækja.

Samtökin skora því á ráðherra, alþingismenn og sveitarstjórnfólk að standa með íslenskum handverksbrugghúsum og standa þannig vörð um störf um land allt, vandaða íslenska framleiðslu og íslenskar skatttekjur.

Stjórn samtaka íslenskra handverksbrugghúsa
Í samtökunum eru eftirfarandi rekstraraðilar:

Austri brugghús – Egilsstöðum

Álfur brugghús – Kópavogi

Belgingur, Hið austfirzka bruggfjelag – Breiðdalsvík

Bjórsetur Íslands, brugghús – Hólum í Hjaltadal

The Brothers Brewery – Vestmannaeyjum

Brugghús Steðja – Borgarbyggð

Bruggsmiðjan Kaldi – Árskógsströnd

Dokkan brugghús – Ísafirði

Flóki – Eimverk – Garðabæ

Gæðingur öl – Kópavogi

Húsavík öl – Húsavík

Jón ríki – Höfn í Hornafirði

Litla brugghúsið – Garði

Malbygg – Reykjavík

Og Natura – Hafnarfirði

RVK Brewing Co. – Reykjavík

Segull 67 – Siglufirði

Smiðjan brugghús – Vík í Mýrdal

Ægir brugghús – Reykjavík

Ölverk – Hveragerði

Ölvisholt – Flóahreppi

Öldur – Mosfells

 

Nýjustu fréttir

Eyjarnar fiskað afar vel að undanförnu
Samgöngur til Vestmannaeyja algerlega óásættanlegar
Skyldumæting í höllina í dag!
Undirskriftalisti vegna ástandsins í Landeyjahöfn
ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.