Breyting á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035;
Til að tryggja nægt athafnarými og viðlegukanta fyrir hafnarstarfsemi er unnið að nýjum valkostum fyrir nýja viðlegu- og stórskipakanta. Bæjarstjórn samþykkti þann 25. Janúar 2024 að auglýsa skipulagslýsingu sem gerir ráð fyrir nýjum reitum fyrri hafnarstarfsemi.
Í Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 er nú þegar gert ráð fyrir stórskipakanti og landfyllingu fyrir utan Eiðið. Er sú staðsetning enn talin fýsilegur kostur en kostnaðarsöm og umsvifamikil framkvæmd. Annar kostur til að stækka hafnarsvæðið er að stækka svæði Skansfjöru til austurs út Gjábakkafjöru (Brimneskantur). Mikil aukning hefur verið á gámaútflutningi á undanförnum árum og ljóst að þörf er fyrir stækkun á gámasvæði. Því er til skoðunar um að byggja upp slíkt svæði við Brimneskantinn.
Fyrirhugaðar breytingar á höfninni snúa að:
Með fyrirhuguðum breytingum á Vestmannaeyjahöfn verður hægt að taka inn stærri skip, sem er nauðsynlegt til að þjónusta sjávarútveginn og aðra atvinnustarfsemi í Eyjum og viðhalda samkeppnisstöðu hafnarinnar og samfélagsins.
Skipulagslýsing er fyrsta skref í gerð skipulagsáætlana. Nánari upplýsingar um útfærslu breytinganna koma fram á næstu stigum málsins. Skipulagsgögnin eru til sýnis í afgreiðslu Ráðhúss Vestmannaeyja, á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar og á vefsíðu sveitarfélagsins.
Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 26. febrúar 2024 í afgreiðslu Ráðhúss, á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is eða í gegnum skipulaggátt Skipulagsstofnunar.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.