Stór sýning og góð aðsókn
HönnunarMars fór fram í tíunda sinn dagana 15. �?? 18. mars sl. Á HönnunarMars er hönnun kynnt sem atvinnugrein sem byggir á traustum grunni og gegnir veigamiklu hlutverki í samtímanum. Á meðal viðburða ár hvert eru sýningar, fyrirlestrar, uppákomur og innsetningar. Á HönnunarMars sameinast allar greinar hönnunar; fatahönnun, arkitektúr, húsgagna- og innanhússhönnun, grafísk hönnun og vöruhönnun. Viðburðir hátíðarinnar eru skipulagðir af íslenskum hönnuðum og arkitektum, en þátttakendur hátíðarinnar telja um 400 ár hvert. Aukinn fjöldi erlendra þátttakenda kemur til landsins með hverju ári og tekur þátt í HönnunarMars en hátíðin er orðin mikilvægt hreyfiafl í íslensku samfélagi og er viðskiptalegt vægi hátíðarinnar mjög mikið fyrir þátttakendur.
Í ár var Eyjamaðurinn Guðmundur �?skar Sigurmundsson meðal þátttakenda en stólar sem hann hannaði ásamt samstarfskonu sinni Alexöndru Jónsdóttur voru til sýnis í salnum Gamla Nýló fyrir neðan Kex hostel við Skúlagötu 28. Blaðamaður hafði samband við hönnuðina tvo og fékk að vita meira um verkefnið.
Viðtalið í heild má finna í nýjasta tölublaði Eyjafrétta og í vefútgáfu blaðsins.

Nýjustu fréttir

Jafntefli hjá Heimi og Írum gegn Ísrael
Fimm ferðir til Landeyjahafnar á mánudag – dýpkun að hefjast
Erlingur stýrði Minden til sigurs í sínum fyrsta leik
Lærdómur liðinnar viku
Herjólfur siglir eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis
ÍBV tapaði stórt gegn FH í Kaplakrika
Vilja öflugri dráttarbát og aðkomu ríkisins að fjármögnun
Eyjafólk í Landsleikunum á RÚV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.