Stóra Lundaballið
DSC_2448
Lundaballið er alltaf vinsælt. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Veiðifélagið Heimaey mun halda “Stóra lundaballið” í ár þann 16.nóvember nk. Eins og allir vita þá er hringur í framkvæmd lundaballa og þurfa Eyjamenn að bíða í 7 erfið ár eftir Stóra Lundaballinu og þola léleg og þreytandi lundaböll 6 ár í röð frá Hellisey, Suðurey, Álsey, Bjarnarey, Brandinum og  Elliðaey. Það er einlæg ósk okkar að Stóra lundaballið í ár verði gott námskeið fyrir forystumenn þessara félaga, þó við höfum enga trú á því.

Nú verður Stóra Lundaballið haldið í Höllinni þann 16.nóvember og búið er að ganga frá hluta þeirra skemmtikrafta sem koma munu fram.  Þar ber helst að nefna Stuðlabandið, Alexander Jarl og karlakór veiðifélagsins, Ragga Gísla, Ari Skrúfjárn og Ingó Veðurguð mun stjórna veislunni, auk allskonar sem mun koma skemmtilega á óvart.

Stóra Lunaballið er ekki bara stærst heldur er það líka alltaf lang ódýrast – við ætlum að hafa verðið í ár 11.800 kr sem er 100 kr ódýrara en síðasti harmleikur sem kom frá Elliðareyjarfélaginu.

Við minnum á að Stóra Lundaballið hefur alltaf selst upp og rétt að bóka tímanlega.

Miðapantanir og skráningar:

Eyþór 861 2287

Grétar Þór 866 7464

 

Ekki draga lappirnar og missa af Stóra Lundaballinu ! Loksins alvöru skemmtun, JIBBÍ!

Veiðifélagið Heimaey.

 

Fréttatilkynning.

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.