Stórfelld skipulagsmistök í uppsiglingu í miðbæ Selfoss?

�?etta var ákveðið á fundi í Tryggvaskála í gærkvöld þar sem nýjustu tillögur meirihluta bæjarstjórnar varðandi skipulag miðbæjarins voru kynntar. Veruleg óánægja er með þær hugmyndir sem komnar eru fram um miðbæjarskipulagið og fara munu í afgreiðsluferli hjá umhverfisnefnd og skipulags- og bygginganefnd sveitarfélagsins. Megn óánægja er einnig með deiliskipulag lóða við Austurveg í Mjólkurbúshverfinu.
�?ánægjan beinist einkum að miklu byggingamagni í miðbænum og húsagerðinni sem tillagan gerir ráð fyrir en hún grundvallast á samningi sveitarfélagsins við Miðjuna ehf þar sem sveitarfélagið afsalar sér byggingarétti gegn óljósu samstarfi um gerð deiliskipulags. Samningur þessi var gerður skömmu fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningar af núverandi fulltrúum meirihlutans sem þá áttu sæti í bæjarstjórn. Gagnrýnendur skipulagstillögunnar telja að í uppsiglingu séu stórfelld mistök í skipulagsmálum og sóun fjármuna.

Fh undirbúningshópsins
Árni Valdimarsson og Sigurður Jónsson

Fréttatilkynning

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.