Stranda bát­um sof­andi
Vestmannaeyjahöfn.

Rekja má 43 skips­strönd við landið á síðustu 20 árum til þess að stjórn­andi sofnaði. Í einu til­viki hafði stjórn­andi vakað í 40 klukku­tíma fyr­ir strandið.

Rann­sókna­stjóri sigl­inga­sviðs RNSA seg­ir þenn­an fjölda uggvæn­leg­an og það sé mik­il mildi að ekki hafi orðið bana­slys í þess­um skips­strönd­um. Hann seg­ir það aldrei nóg­sam­lega brýnt fyr­ir skip­stjórn­end­um að þeir fái nauðsyn­leg­an hvíld­ar­tíma.

Í um­fjöll­un um mál þetta í sér­blaði Morg­un­blaðsins um sjáv­ar­út­vegs­mál í dag seg­ir Ásta Þor­leifs­dótt­ir, vara­formaður fagráðs um sigl­inga­mál, að fagráðið muni efna til ráðstefnu 19. mars þar sem fjallað verður sér­stak­lega um þetta vanda­mál.

„Það sem slær mig svo­lítið illa er að í júlí síðastliðnum urðu sex svona strönd við góðar aðstæður. Við höf­um verið ótrú­lega hepp­in að það hafi ekki orðið nein bana­slys, eft­ir því sem ég best veit,“ sagði Ásta. Hún bend­ir á að tjónið sé samt mikið. Bát­arn­ir jafn­vel ónýt­ir, fólk missi vinn­una og svona óhöpp hafi keðju­verk­andi áhrif á þeim stöðum þar sem bát­arn­ir voru gerðir út. And­leg líðan þeirra sem í þessu lenda bíði þess jafn­vel aldrei bæt­ur.

mbl.is

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.