Strandveiðar stöðvaðar óvænt

Í tilkynningu frá Fiskistofu kemur fram að síðasti dagur strandveiða 2022 hafi verið 20. júlí. Stofan hefur sent auglýsingu þess efnis til birtingar í Stjórnartíðindum.

Samkvæmt Landssambandi Smábátaeigenda eru ennþá 789 tonn óveidd af 11.074 tonna aflaviðmiðun í þorski. Það kemur á óvart að síðustu dagar strandveiða hafi náð að virkja ákvæði laga um lokun. Búist var við að aflinn hefði ekki náð viðmiðuninni og því yrðu veiðar heimilaðar næstkomandi mánudag.

Við fengum Ragnar Þór Jóhannsson, formann smábátafélagsins Farsæls í Eyjum til að fara betur yfir stöðuna með okkur.

700 störf lögð niður
Hann segir að það séu á bilinu 10-12 skip sem stundi strandveiðar við Eyjar og margir sem treysti á þetta fyrirkomulag til að halda útgerðinni áfram.

„Þessi skerðing núna hefur gríðarleg áhrif um allt land, að veiðar skuli vera stöðvaðar svona þegar 5 vikur eru eftir af veiði tímabilinu, er um leið verið að leggja niður um 700 störf. Það væri sanngjarnara að festa 48 daga á hvert skip sem dreifast á 6 mánuði, því það er misjafnt hvenær besti og stærsti fiskurinn er við hvert svæði á landinu.“

Sækja sjóinn á sínum forsendum
„Nú má halda áfram á veiðar á laugardaginn í hinu almenna kvótakerfi og á leigu kvóta, en sá markaður hefur verið mjög erfiður þetta árið, þar sem það er búið að vera lítið framboð af fisk til leigu og dýrt að leigja.“

„Ég skora á Alþingi að efla strandveiðikerfið og bæta í það kvóta til þess að styrkja landsbyggðina, þannig að ungir menn geti farið í útgerð og sótt sjóinn á sínum eigin forsendum.“

Ragnar Þór Jóhannsson, Raggi Togari, formaður félags smábátaeignda í Eyjum

Nýjustu fréttir

Minningar um gos – söngvar og sögur í Eldheimum
„Fínasti vertíðarfiskur”
Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026
Ein ferð í Landeyjahöfn
Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.