Stuð hjá Jónasi Sig í Höllinni
Jónas kann þá list að ná til fólks. Myndir Óskar Pétur.

Það  var góð stemming á tónleikum Jónasar Sig og hljómsveitar í Höllinni í gærkvöldi. Gestir hefðu að ósekju mátt vera fleiri en 150 til 200 manns verður að teljast gott á Júróvisjonkvöldi. „Fjörið var mikið og auðvitað hefði verið gaman að sjá fleiri en þeir sem mættu í Höllina í gærkvöldi fengu helling fyrir peninginn,“ segir Óskar Pétur ljósmyndari sem lét sig ekki vanta. „Þetta voru frábærir tónleikar enda valinn maður í hverju rúmi í hljómsveitinni. Lögin frábær og ekki skemma sögur milli laga. Mætti sem enginn sérstakur aðdáandi en það breyttist í gærkvöldi.“

Í hljómsveitinni eru toppmenn er skipuð Jónasi Sig, Ómari Guðjónssyni á gítar, Tómasi Jónssyni á orgvélar og syntha, Arnari Gísla á trommur og Guðna Finns á bassa.

 

 

Nýjustu fréttir

Átján framúrskarandi fyrirtæki í Eyjum
Bærinn semur við kaupmenn um jólagjafakort
Fjarvarmi í Eyjum hækkaði um 4,81% í nóvember
Herjólfur miðar við 2,5% hækkun um áramót
Já, nei, já
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Ellert Scheving segir upp hjá ÍBV
Stefna að því að hámarksbið eftir greiningu verði 12–18 mánuðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.