Stympingar, rúðubrot, skemmdir á bifreið og umferðarlagabrot
21. september, 2009
Það var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið. Nokkur erill var í kringum skemmtanahald helgarinnar og eitthvað um stympingar. Hins vegar liggja engar kærur fyrir. Einn fékk að gista fangageymslur lögreglu eftir skemmtanahald helgarinnar en hann var handtekinn á veitingastaðnum Volcano eftir að hafa hrint einum gesti staðarins á útidyrahurð þannig að rúðan í hurðinni brotnaði. Gestinn sakaði ekki. Hann sýndi einnig mótþróa við handtöku og var ósáttur við aðkomu lögreglu.