Styrktarútsending á alþjóðadegi gegn krabbameinum

Fimmtudagskvöldið, 4. febrúar, á alþjóðadegi gegn krabbameinum, verður Kraftur með söfnunar- og skemmtiþáttinn „Lífið er núna“ í beinni útsendingu á Sjónvarpi Símans, K100 og í netstreymi á www.mbl.is.

Kraftur hefur fengið landsþekkta skemmtikrafta og tónlistarfólk í lið með sér til að skemmta áhorfendum og eru það engin önnur en GDRN, Valdimar, Ari Eldjárn, Sigríður Thorlacius og Páll Óskar sem munu stíga á stokk. Sóli Hólm og Sóley Kristjánsdóttir verða kynnar kvöldsins og munu þau einnig fá gott fólk í sófann til sín til að spjalla um málefni ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda.

„Þátturinn verður skemmtiþáttur en um leið söfnunarþáttur,“ segir Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts. „Það skiptir okkur í Krafti miklu máli að njóta augnabliksins og ætlum við að bjóða landsmönnum að njóta með okkur fyrir framan sjónvarpsskjáinn fimmtudaginn næstkomandi ásamt því að kynna þeim starf félagsins. Við höfum fengið frábæra listamenn með okkur í lið og er ég viss um að allir munu geta notið stundarinnar með okkur,“ segir Hulda enn fremur.

Lífið er núna þátturinn er lokahnykkur í vitundar- og árvekniátaki sem Kraftur hefur nú staðið fyrir síðustu tvær vikurnar. Markmið átaksins er að vekja athygli á hversu marga krabbamein snertir, selja húfur til styrktar félaginu og starfsemi þess sem og að afla styrkja fyrir félagið. Um 70 ungir einstaklingar greinast með krabbamein á hverju ári og þegar fólk greinist með krabbamein hefur það ekki einungis áhrif á það heldur fjölmarga í kring þar á meðal maka, foreldra, börn, vini, vandamenn og jafnvel vinnufélaga.

Áhorfendur þáttarins geta lagt Krafti lið með því að kaupa húfur til styrkar félaginu, hringja inn í símaver og gerast mánaðarlegir styrktaraðilar eða gefa stakan styrk en einnig er hægt að senda SMS með  skilaboðunum Kraftur í símanúmerið 1900 og renna þá 2500 krónur til Krafts af næsta símreikningi.

Þennan dag verður einnig Vetrarhátíð sett en hún stendur yfir dagana 4. – 7. febrúar. Vegna sóttvarnarráðstafanna verður hátíðin með breyttu sniði í ár og lögð áhersla á list í almannarými, útilistaverk o.fl. Söfnunarþáttur Krafts er liður í hátíðinni en honum verður sjónvarpað frá Mál og menningu Laugavegi 18 og verða Kraftsfélagar þar fyrir utan að selja Lífið er núna húfurnar fyrir vegfarendur. Að auki verður Kraftur með grafískt „Lífið er núna“ listaverk á Laugavegi 31. „Við hvetjum fólk eindregið til að rölta niður í bæ og skoða listaverkin og kíkja við á Laugaveginum og taka mynd af sér hjá listaverkinu okkar og endilega deila henni jafnvel á samfélagsmiðlum með #lífiðernúna og sýna þar með samstöðu með Krafti og öllum þeim sem krabbamein hefur haft áhrif á,“ segir Hulda að lokum.

Nýjustu fréttir

Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Lokadagur TM-mótsins: Gleði, keppni og ógleymanlegar minningar
Vestmannaeyjabær: Ráðið í stöðu deildarstjóra launadeildar
Tæplega 2.000 farþegar nýttu áætlunarflugið
Rakel býður upp á Reikiheilun í Eyjum
ÍBV sækir Þrótt heim í dag
Viðgerð Herjólfs dregst fram í júlí

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.