Styttist í lagningu VM 5
Aura og Herjólfur í innsiglungunni til Eyja. Myndir Óskar Pétur.

„Það styttist í að Vestmannaeyjastrengur 5 komi í land á sandinum – við erum núna um 100 metra frá landi.  Þegar hann er kominn í land snýr skipið við og strengurinn lagður til Eyja. Við reiknum með að það taki um sólarhring. Svo tekur við tengivinna í landi, við reiknum með að tengivinnunni verði formlega lokið um mánaðamótin ágúst – september og strengirnir teknir rekstur í framhaldinu,“ sagði Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi Landsnets við Eyjafréttir í morgun.

Lagning tveggja nýrra rafstrengja frá Landeyjahöfn til Vestmannaeyja hófst á föstudaginn. Verkið er unnið af norska fyrirtækinu Seaworks, sem sérhæfir sig í lagningu neðansjávarrafstrengja. Við það eykst flutningsgeta um 120 MVA. Verklok áætluð um miðjan júlí. Sérhannað skip, Aura er notað við lagningu strengjanna.

Tilgangurinn er að bæta afhendingaröryggi raforku til Vestmannaeyja og tryggja örugga orkutengingu til framtíðar. Núverandi strengur hefur verið í notkun í 12 ár og hefur bilað tvisvar.

Hér fylgja nokkrar myndir sem Óskar Pétur tók þegar strengurinn var tekinn í land í Vestmannaeyjum.

 

 

Nýjustu fréttir

Fjör, gleði og glæsileg skemmtun á árshátíð VSV
Forsendur þess að fjölskyldur blómstri
Opinn framboðsfundur Eyjafrétta í Eldheimum
Þingnefnd boðar opinn fund um stöðu samgangna til Eyja
Hákon Már Örvarsson gestakokkur á GOTT
Allt undir í Eyjum – ÍBV þarf sigur
Árangurinn liggur fyrir – Höldum áfram
Siglt til Þorlákshafnar
viðburðir
Oddvitar 2026 Samsett
14. maí 2026
17:00
Opinn framboðsfundur Eyjafrétta í Eldheimum
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.