Suðurlandið er besti útivistar áfangastaður í Evrópu
Ferðatímaritið Luxury Travel Guide (LTG) hefur valið Suðurland sem besta útivistar áfangastað Evrópu 2018 (e. Outdoor Activity Destination of the Year 2018).
Dómnefnd LTG er skipuð af sérfræðingum á ýmsum sviðum ferðaþjónustunnarog hefur um árabil veitt áfangastöðum sem skara fram úr einhverjum sviðum eftirsótt verðlaun og þá í mörgum flokkum. Tímaritinu er dreift til yfir 500.000 áskrifenda og á 10.000 lúxushótel og skemmtiferðaskip um allan heim. Í því er að finna meðal annars greinar, fréttir og umsagnir um lúxusferðamennsku og fyrirtæki í þeim geira.
Forsendurnar við val á þessari viðurkenningu var hið fjölbreytta úrval afþreyingar á Suðurlandi, gott aðgengi og fjöldi náttúruperla sem skrýða áfangastaðinn.
Í tilkynningu segir að Markaðsstofa Suðurlands muni nýta þetta í sínu markaðsstarfi fyrir árið 2018 og hefur m.a. hafið samvinnu með LTG í tengslum við sérstaka kynningu í þeirra miðlum, blaðamannaheimsóknir og fleira. �??Við hvetjum einnig aðila í ferðaþjónustu að gera hið sama. Við erum afar stolt af þessum verðlaunum og óskum ferðaþjónustunni á Suðurlandi til hamingju með flotta viðurkenningu.�??

Nýjustu fréttir

Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.