Sumarið heilsar með stórleik
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson

ÍBV fær KR í heimsókn á Hásteinsvöll í dag, á sumardaginn fyrsta í leik í Bestu deild karla. Flautað verður til leiks klukkan 13:00 á Hásteinsvelli.

KR situr á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir tvo leiki og markatöluna 8:4. Ljóst er því að verðugt verkefni bíður Eyjamanna, sem hafa farið rólegar af stað og sitja í 10. sæti með eitt stig og markatöluna 2:3 eftir tvo leiki.

Eyjamenn munu þó treysta á heimavöllinn og stemninguna sem fylgir frídeginum, en jafnan hefur verið góð mæting á Hásteinsvöll þegar vel viðrar á fyrsta degi sumars. Leikurinn er sá fyrsti af fjórum í deildinni í dag. Klukkan 17:00 mætast Þór og Fram á VÍS vellinum. Síðar um kvöldið, klukkan 19:15, tekur Víkingur R. á móti Stjarnan og Valur fær FH í heimsókn á Hlíðarenda.

Allt er því til reiðu fyrir sannkallaðan fótboltadag þar sem sumarið er boðið velkomið með stórleik í Eyjum.

Nýjustu fréttir

Malbik, hraun og list í Eyjum
Þak sett á afslátt Loftbrúar
Brattir þrátt fyrir bræluna
Spennandi vetur hjá fimleikafélaginu Rán
Eyjamenn sækja Val heim í mikilvægum leik
Eyjakonur geta tryggt þriðja sætið á Hásteinsvelli
Elísa Viðarsdóttir leggur skóna á hilluna
Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.