Sumarmorgunn í Herjólfdal
Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir og Ólafur F. Magnússon.

Ólafur F. Magnússon hefur gefið út nýtt lag við ljóð langafa síns, Magnús Jónsson á Sólvangi. söngkona sem einnig er ættuð frá Vestmannaeyjum syngur langið. Með laginu sagðist Ólafur vera heiðra minningu langafa síns.

„Sumarmorgunn í Herjólfdal er ljóð eftir langafa minn, Magnús Jónsson á Sólvangi. Ég kynntist ljóðinu ekki fyrr en á ættarmóti Sólvangsættar (afkomenda Magnúsar og konu hans Hildar Ólafsdóttur (1882-1917)). Þá var gefin út bókin “Þegar gullið er hreint,” með ævibrotum og ljóðum Magnúsar, sem ekki höfðu varðveist nógu vel fram að þeim tíma, þar sem hann orti undir nafninu Hallfreður.Magnús Jónsson var störfum hlaðinn alla ævi. Hann flutti með barnmarga fjölskyldu sína frá Seyðisfirði til Vestmannaeyja, árið 1915, og bjó fyrst í Túnsbergi, en árið 1920 reisti hann húsið Sólvang við Kirkjuveg, sem því miður féll vegna termítaskemmda fyrir fáeinum árum.

Auk sjómennsku stundaði Magnús ritstörf, en hann gaf úr Vikublaðið Víði í Eyjum, frá því sonur hans, afi minn og alnafni, Ólafur Magnússon, féll frá 27 ára gamall. árið 1930.
Vikublaðið Víðir kom út í Eyjum frá 1928 og fyrir andlát Magnúsar, árið 1946, var blaðið selt Einari Sigurðssyni útgerðamanni í Eyjum, sem oft er nefndur Einar ríki.

Víðir varð síðar að Fylki, málgagni sjálfstæðismanna í Eyjum. Þó er sá munur á Víði og flokksmálgögnum, að allir Eyjamenn máttu skrifa í Víði, þó að skrif Páls Kolka og séra Jes Gísasonar hafi sett mestan svip á blaðið, auk ritstjórnar Magnúsar á Sólvangi.
Það ljóð, sem birtist í lagi mínu, Sumarmorgunn í Herjólfsdal, birtist fyrst í Víði, 7. ágúst 1941 í tilefni Þjóðhátíðar. Víst má þó telja að ljóðið sé ort fyrr, því að Magnús samdi gjarnan Þjóðhátíðarljóð Eyjamanna, áður en Oddgeir Kristjánsson fór að semja Þjóðhátíðarlög við ljóð Árna úr Eyjum, árið 1933.

Magnús, afi minn samdi einmitt Þjóðhátíðarljóð Vestmannaeyja, árið 1932, sem ber nafnið Heimaey, en ég samdi við það samnefnt lag, sem ég frumflutti á Goslokahátíð, 7. júlí 2017, á tónleikum með Gunnari Þórðarsyni í Landakirkju. Það lag kom út á youtube með myndum frá Eyjum teknum 7. júlí 2017.

Ég er auðvitað að heiðra minningu langafa míns, með því að gefa út lög mín við ljóð hans og hef mikla ást á Eyjum og Eyjamönnum, vegferð þeirra og sögu. Um það ber vitni lag mitt, Við Ræningjatanga, sem einnig má sjá á youtube og er tekið upp í Eyjum 7. júlí 2017. Þetta lag mitt og ljóð er að sjálfsögðu um Tyrkjaránið í júlí 1627, sem íslensk æska þekkir nánast ekkert til, nema þá börnin í Eyjum, sem heiðra fórnarlömb Tyrkjaránsins reglulega.
Það er tónmeistari minn, Vilhjálmur Guðjónsson, sem semur lagið, Sumarmorgunn í Herjólfsdal, með mér. Auk þess að vera meðhöfundur lagsins, útsetur hann og leikur tónlistina og hljóðritar hana. Sjálft lagið varð þó að sjálfsögðu fyrst til í hug mér og hjarta við að lesa ljóð Magnúsar, langafa mín á Sólvangi.

Söngkennatri minn, Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir, sem er alin upp í húsi langafa míns á Sólvangi, syngur lagið með sinni þýðu og fallegu rödd. Þannig er mikill Sólvangsandi í laginu, frá okkur sem erum af Sólvangsætt og þeim, sem þar hafa búið.

Friðrik Grétarsson hefur séð um myndvinnslu á öllum lögum mínum, sem birst hafa á youtube (22 talsins). Myndbandið við lagið, Sumarmorgunn í Herjólfsdal, var tekið upp með tækni græna tjaldsins (“green screen”) á bænum auðsholti í Ölfusi, 5. júní á þessu sumri. Síðan hefur Friðrik, kvikmyndatökumaður minn, bætt inn á frumupptökurnar fallegum landslags- og Þjóðhátíðarmyndskotum,“ sagði Ólafur um hið nýútgefna lag.

Hér fer á eftir Þjóðhátíðarljóðið,

Sumarmorgunn í Herjólfsdal.

Hér er lífið svo hlýtt.
Ó, hve landið er frítt,
er hið litauðga skraut,
sem við auganu hlær,
faðmar ljósríkust sól,
eins um lautu og hól,
og er líður um byggðina
kyrrlátur blær.

Nú er glatt inni í Dal.
Það er glymur í sal,
því að gulllúður þeytir
í hamrinum dís.
Það er fagurt að sjá,
eins og fagni hvert strá,
þegar fuglinn með söngvum
úr berginu rís.

Ofan háfjallsins brún,
niður hlíðar og tún
upp um hamrana bröttu
í fuglanna ból,
yfir hraun yfir bæ,
út um hyldjúpan sæ
líður himneskur ylur
frá geislandi sól.

Nýjustu fréttir

„Þjóðvegurinn okkar er brotinn“
Elmar kom að 15 mörkum fyrir Nordhorn-Lingen
Náðu fjórum tímum í dýpkun í gær – uppfært
Spurt og svarað: Sonja frá Miðflokknum
ÍBV sækir Hauka heim í öðrum leik undanúrslita
ÍBV tapaði á Hlíðarenda
Bæjaryfirvöld kalla eftir tafarlausum aðgerðum vegna samgöngustöðu
Baldur fyrr í áætlun vegna biðlista

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.