Sunna og Sandra mynda fyr­irliðat­eymi
Sunna í leik með ÍBV. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Sunna Jóns­dótt­ir, leikmaður ÍBV, hef­ur verið skipaður fyr­irliði ís­lenska kvenna­landsliðsins í hand­bolta. Hún tek­ur við fyr­irliðaband­inu af Rut Jóns­dótt­ur sem er í barneigna­leyfi.

RÚV greindi frá í gær. Ásamt Sunnu munu Þórey Rósa Stef­áns­dótt­ir og Sandra Erl­ings­dótt­ir mynda fyr­irliðat­eymi.

Sunna er 34 ára göm­ul og á 75 lands­leiki að baki. Í þeim hef­ur hún gert 56 mörk. Hún hef­ur leikið með ÍBV frá ár­inu 2018 en var þar á und­an í at­vinnu­mennsku í Nor­egi og Svíþjóð.

Ísland leik­ur við Lúx­em­borg í dag og gegn Fær­eyj­um á úti­velli á sunnu­dag í fyrstu leikj­um liðsins í undan­keppni EM sem fram fer á næsta ári. Eft­ir það tek­ur við loka­mót HM.

Þjálfarateymi A landsliðs kvenna hefur valið þá 16 leikmenn sem mæta Lúxemborg í dag í fyrstu viðureign íslenska liðsins í undankeppni EM 2024. Leikurinn fer fram að Ásvöllum og hefst hann kl. 19:30. Frítt er inn í boði Boozt og verður leikurinn einnig í beinni á RúV 2.

Fjölmennum á Ásvelli og styðjum stelpurnar okkar!

Leikmannahópurinn gegn Lúxemborg er þannig skipaður:
Markverðir:
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, EH Aalborg (43/1)
Hafdís Renötudóttir, Valur (44/2)
Aðrir leikmenn:
Andrea Jacobsen, Silkeborg-Voel (39/58)
Berglind Þorsteinsdóttir, Fram (10/5)
Díana Dögg Magnúsdóttir, BSV Sachsen Zwickau (38/43)
Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukar (6/5)
Elín Rósa Magnúsdóttir, Valur (3/10)
Hildigunnur Einarsdóttir, Valur (94/103)
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, Skara HF (5/7)
Katrín Tinna Jensdóttir, Skara HF (10/2)
Lilja Ágústsdóttir, Valur (8/2)
Perla Ruth Albertsdóttir, Selfoss (32/49)
Sandra Erlingsdóttir, TuS Metzingen (20/82)
Sunna Jónsdóttir, ÍBV (75/56)
Thea Imani Sturludóttir, Valur (62/114)
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram (121/352)
 

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.