Súrrealískt að mæta á Bessastaði

María Fönn Frostadóttir hefur haft í nógu að snúast upp á síðkastið og hefur heldur betur látið til sín taka. Maríu Fönn var afhent forsetamerki Bandalags íslenskra skáta á Bessastöðum í byrjun mánaðarins, sem er mikil viðurkenning fyrir hennar störf. Forsetamerkið byggir á kjarnagildum skátahreyfingarinnar, þar sem lögð er áhersla á persónulegan þroska og framlag til samfélagsins. Til að hljóta merkið fara skátar í gegnum tveggja til þriggja ára ferðalag sem felst í 24 ólíkum verkefnum, allt hannað til að styrkja einstaklinginn og hvetja hann til áframhaldandi vaxtar. María hefur einnig verið virk í tónlistinni og kom hún nýverið fram með Einari Ágúst og Gosunum og spilar í tveim hljómsveitum. María Fönn er Eyjamaður mánaðarins að þessu sinni. 

Fjölskylda? Foreldrar mínir eru Ingibjörg og Frosti! Ég á þrjár systur; Söndru Dröfn, Bjartey Dögg og Tinna Mjöll. Svo á ég líka hund sem heitir Tindur. 

Mottó? Ég hef þrjú mottó: Lúkasarguðspjall 6:31. Always look on the bright side og eina skoðunin sem skiptir máli í þínu lífi er þín eigin.                                                                                                 

Síðasta hámáhorfið? Mr Queen, mjög mikill kaos en ekkert eðlilega ávanabindandi þættir. 

Uppáhalds hlaðvarp? Distractible. 

Aðaláhugamál? Tónlist, leiklist, myndlist, skátarnir og spil! 

Eitthvað sem þú gerir á hverjum degi sem þú gætir ekki verið án? Ég kíki alltaf á calendar og maps, ég væri alveg týnd í stórborginni án þeirra (enda er Reykjavík þekkt sem borg óttans, mæli ekki með að vera strandaður einhvers staðar því maður fylgdist ekki með strætó). 

Hver eru næstu skref? Nú erum við í Þögn að fara gefa út litla plötu fljótlega, svo það er rosalega spennandi! Annars er ég nú aðallega að einbeita mér að náminu hér í Háskóla Íslands. Hrikalega skemmtilegt nám, sjálf valdi ég leiklistakennarann þar sem hjartað mitt hefur alltaf verið í leiklistinni. Ég er líka nýbyrjuð í annarri hljómsveit og er forseti nemendaráðs hér í Háskólanum svo það er nóg að gera hjá mér:)) 

Hvað er velgengni fyrir þér? Fyrir mér er það velgengni þegar þú getur horft til baka sáttur með sjálfan, að þú hafið þorað að taka þetta fyrsta skref sem skilaði þér á þennan stað. Svo gengur lífið heldur ekki út á að gera engin mistök heldur læra af mistökunum. 

Hvenær kviknaði áhugi þinn á skátunum og hvenær byrjaðir þú? Ég hef verið í skátunum síðan ég man eftir mér, byrjaði formlega um sjö ára í dreka skátunum. Skátarnir hafa mótað mig sem manneskju og ég er mjög þakklát að þeir hafa fylgt mér í gegnum lífið. 

Hvernig upplifun var það að fá forsetamerkið afhent á Bessastöðum? Það var rosalega súrrealískt að mæta á Bessastaði til að hitta forsetann. Það er ekki á hverjum degi sem maður er boðaður á Bessastaði til að fagna eigin afrekum. Forsetamerkið hefur alltaf verið á tékklistanum mínum en ég vissi ekki hvort mér myndi takast þetta svo það var virkilega góð tilfinning að sitja þarna með hinum verðandi forsetamerki höfunum. Ég er nú 1465 skáti í heiminum til að hafa hlotið þennan heiður og ég verð að eilífu þakklát fyrir það að hafa fengið þetta tækifæri. Forsetamerkið er alls ekki endinn heldur viðurkenning fyrir þann einstakling sem ég hef orðið og þá hluti sem ég hef gert í gegnum árin. 

Hvað er það skemmtilegasta við sönginn að þínu mati? Það skemmtilegasta við sönginn eru líklega tækifærin sem ég hef fengið, í gegnum söngferilinn hef ég fengið að kynnast ótrúlega mörgu skemmtilegu fólki. Það er virkilega dýrmætt að fá að vera hluti af senunni hérna á Íslandi og að fá tækifæri til þess að tjá mig og sýna heiminum hver ég er. Auk þess vona ég að það sem ég skapa hvetur aðra til þess að skapa eitthvað:)) Svo þykir mér líka bara ofboðslega gaman að syngja. 

Hvernig undirbýrð þú þig áður en þú stígur á svið? Ég reyni að taka litlar upphitanir og minna sjálfa mig á að í stóra samhenginu skiptir það ekkert máli ef eitthvað fer úrskeiðis, upplifunin skiptir mestu máli og ég þarf bara að muna að njóta og hafa gaman. 

Eitthvað að lokum? Lífið er of stutt til að lifa því ekki fyrir sjálfan þig. 

Nýjustu fréttir

Upphitun sem lofar sannkallaðri Þjóðhátíðarveislu 
Fullfermi á báðum togurum
Dýpkun tefst í Landeyjahöfn – uppfært
Framlag í Ferðasjóð íþróttafélaga tvöfaldast
Fullorðinsfimleikar hjá Rán
Tómas Bent með sigurmark Hearts
Tilboð langt undir áætlun í dýpkun Landeyjahafnar
Loðnan berst til Eyja

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.