Svipt veiðileyfi í 2 vikur
Landad Ur Vestmannaey Ve 22 Jul
Landað úr Vestmannaey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Fiskistofa hefur svipt skip Bergs-Hugins, Vestmannaey VE 54 leyfi til veiða í tvær vikur frá og með 6. janúar nk. til og með 19 janúar. Þetta kemur fram í ákvörðun Fiski­stofu sem birt er á vefsíðu Fiskistofu. Er skipið svipt veiðiréttinum vegna vigtarbrots sem átti sér stað þann 5. desember 2023.

Fram kemur í ákvörðuninni að um al­var­leg og meiri­hátt­ar brot skip­stjóra og áhafn­ar­meðlima að ræða fram­in af stór­kost­legu gá­leysi, sem hefði leitt til veru­legs ávinn­ings fyr­ir málsaðila hefðu þau ekki kom­ist upp. Vegna þessa segir Fiski­stofa ekki ástæðu til að áminna eða veita lág­marks­leyf­is­svipt­ingu þrátt fyr­ir að um sé að ræða fyrsta brot.

Málsaðili tel­ur hins veg­ar ekki neinn ásetn­ing hafa legið að baki þess að bíl­stjóri á veg­um Eim­skips hafi ekið á brott með rúm tíu tonn af ýsu held­ur hafi verið um mann­leg mis­tök að ræða sem leiddi til þess að bíl­stjór­inn fór ekki á bíl­vog og fékk ekki vigt­un­ar­nótu. Í ákvörðun­inni seg­ir Fiski­stofa það hins veg­ar ekki skipta máli þar sem ábyrgðin á því að afli sé vigtaður sé á herðum skip­stjóra.

 

Mbl.is greindi fyrst frá. Nánar má lesa um málið hér.

Nýjustu fréttir

Systkinaafsláttur nær nú einnig til skráningardaga
Tvö karlalið ÍBV í eldlínunni í dag
Skilaboð til ríkisstjórnar Kristrúnar?
Kristrún framlengir við ÍBV
ÍBV tapaði á heimavelli gegn Fram
ÍBV byrjar Olís deildina á sigri
Dreymir um að verða fótboltamaður
Björt hlakkar til að læra að lesa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.