Sýnatökur með tilliti til mótefnamælinga

Síðustu daga hafa farið fram sýnatökur í Vestmannaeyjum fyrir m.a. fyrirhugaðar mótefnamælingar hjá Íslenskri erfðagreiningu. Þeim sem hafa lokið einangrun og sóttkví vegna COVID-19 hefur verið boðið að koma og er búið að taka sýni (blóðsýni og háls- og nefkoksstrok) hjá um 500 manns. Ekki hefur náðst í alla og hugsanlega eru einhverjir sem ekki eru á listanum.

Boðið verður upp á sýnatökur aftur núna í vikunni, næst á morgun þriðjudag. Mig langar því að biðja þá sem hafa lokið einangrun eða sóttkví og ekki hafa fengið tilboð um að koma í rannsókn að senda tölvupóst í netfangið eyjaklukk@hsu.is ef þeir óska eftir að fá tíma.
Til að fá sem besta mynd af stöðu mála hér í Eyjum er mikilvægt að fá sem besta þátttöku. Hún er þegar orðin mjög góð, en ég vil hvetja sem flesta til að nýta sér þetta tilboð.

Hjörtur Kristjánsson
Umdæmislæknir sóttvarna á Suðurlandi

 

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.