Tæp 63 prósent segja nei í Suðurkjördæmi
Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram á morgun. Samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup segjast 62,8 prósent í Suðurkjördæmi líkleg til að greiða atkvæði gegn því að aðildarviðræður við Evrópusambandið verði hafnar að nýju. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Meirihluti kjósenda í Suðurkjördæmi telur líklegast að hann muni greiða atkvæði gegn því að Ísland hefji á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun.

Þetta sýna niðurstöður Þjóðarpúls Gallup, sundurgreindar eftir kjördæmum. Könnunin var gerð dagana 24. til 27. ágúst.

Í Suðurkjördæmi segjast 62,8 prósent líkleg til að greiða atkvæði gegn því að viðræður hefjist á ný en 37,2 prósent hyggjast segja já. Munurinn er því 25,7 prósentustig. Um 260 svarendur eru að baki niðurstöðunni í kjördæminu.

Andstaðan mælist töluvert meiri í Suðurkjördæmi en á landsvísu. Á landinu öllu segjast 51,6 prósent líkleg til að segja nei en 48,4 prósent já. Munurinn á landsvísu er því aðeins 3,1 prósentustig.

Norðvesturkjördæmi er eina kjördæmið þar sem andstaðan mælist meiri en í Suðurkjördæmi. Þar segja 67,8 prósent nei. Í Norðausturkjördæmi mælist andstaðan 59,4 prósent.

Meirihluti er hins vegar fyrir því að hefja aðildarviðræðurnar á ný í báðum Reykjavíkurkjördæmunum og í Suðvesturkjördæmi. Mestur er stuðningurinn í Reykjavíkurkjördæmi norður, þar sem 60,7 prósent segjast líkleg til að greiða atkvæði með tillögunni.

Niðurstöður Þjóðarpúlsins sýna þannig skýran mun eftir landshlutum. Stuðningur við endurupptöku aðildarviðræðna er mestur á höfuðborgarsvæðinu en andstaðan mest í landsbyggðarkjördæmunum. Hafa ber í huga að meiri óvissa fylgir niðurstöðum einstakra kjördæma vegna færri svarenda en í heildarniðurstöðu könnunarinnar.

Nýjustu fréttir

Tæp 63 prósent segja nei í Suðurkjördæmi
ÍBV stelpunum spáð sigri í Olís deildinni – Strákunum spáð sjöunda sæti
Spyr Morgunblaðið spurninga sem RÚV lætur eiga sig?
Myndband: Ný íbúðablokk tekur á sig mynd við Áshamar
Sjö sóttu um – sex umsóknir standa eftir
Evrópa er meira en Evrópusambandið
Suðurlandi allt
Tvö afmælismót Taflfélagsins um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.