Tafir á afhendingu innfylliefna
default
Hásteinsvöllur kominn með gervigras. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Brynjar Ólafsson, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar fór yfir stöðu framkvæmda á Hásteinsvelli á fundi framkvæmda- og hafnarráðs í vikunni. Fram kemur í fundargerðinni að búið sé að leggja gervigras og keyra sandi í völlinn. Tafir hafa verið á afhendingu innfylliefna frá framleiðanda þar sem verktaki hefur ekki tryggt afhendingu þeirra. Áætluð afhending er eftir 2 vikur.

Þá segir að uppsetning á búnaði fyrir vökvunarkerfið verði klárað í næstu viku. Framkvæmdir vegna tæknirýmis er á eftir áætlun og mikilvægt að hraða framkvæmdum eins og kostur er til að stytta framkvæmdatíma. Í niðurstöðu ráðsins egir að ráðið ítreki mikilvægi þess að taka völlinn í notkun sem fyrst.

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.