Úrslitakvöld Vöruhúsdeildarinnar á laugardaginn
Pílan í Höllinni. Ljósmyndir/aðsendar.

Sigurvegari Vöruhúsdeildarinnar 2026 verður krýndur laugardaginn 28. mars upp í Höll þegar úrslitakvöld Pílufélags Vestmannaeyja fer fram.

Viðburðurinn verður sögulegur fyrir umfang sitt en leikirnir verða spilaðir uppá stóra sviðinu og varpa myndavélar nærmyndum af spjaldi og leikmönnum uppá sýningartjöldin. Einnig verða leikirnir í beinni á YouTube rás Pílufélagsins. Það er því óhætt að segja að um er að ræða stærsta píluviðburð í sögu Vestmannaeyja.

Spilaðir verða þrír leikir – tveir undanúrslitaleikir og að lokum úrslitaleikurinn sjálfur. Í undanúrslitum mætast Ágúst Gísli Helgason og Guðmundur Tómas Sigfússon og síðan Bjarni Heimir Kristinsson og Sindri Orrason.

Húsið opnar 18:00 og fyrsti leikurinn hefst klukkan 19:15. Vöruhúsið mun standa fyrir veitingasölu þar sem vængir og smáborgarar verða fáanlegir á meðan birgðir endast. Starfsfólk Hallarinnar mun að sjálfsögðu standa vaktina á barnum og passa uppá að enginn fari þyrstur heim.

Það er frítt inn og bestu borðin fara fyrst, svo um að gera að mæta tímanlega! Ekki láta þennan viðburð fram hjá þér fara, segir í tilkynningu Pílufélags Vestmannaeyja.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.