Eftir Frosta Sigurjónsson.
Bókin er skrifuð af því tilefni að Íslendingar gætu fljótlega þurft að taka afstöðu til þess hvort innganga í Evrópusambandið sé skynsamleg. Hún fjallar ekki um kosti og galla aðildar Íslands að ESB en gefur þess í stað greinargóða lýsingu á uppbyggingu sambandsins, stjórnkerfi þess og þróun til dagsins í dag. Sérstaklega er fjallað um eiginleika tollabandalags ESB, stefnu þess í landbúnaðar- og sjávarútvegsmálum og einnig um utanríkismál ESB og myntbandalag evrunnar.
Áföll eins og fjármálahrun, Brexit, flóttamannavandi og heimsfaraldur, sýna styrkleika og veikleika sambandsins og bókin skoðar hvernig ESB gekk að vinna úr þeim.
Í byrjun árs 2026 glímdi Evrópusambandið við nokkur stór vandamál sem tekin eru til skoðunar í bókinni, svo sem vaxandi lýðræðishalla, öldrun, versnandi skuldastöðu, ófjármagnaða lífeyrissjóði, stríð í Úkraínu, hátt orkuverð og efnahagssamdrátt. Á sama tíma hefur fylgispekt aðildarríkjanna við stefnu og ýmsar ákvarðanir ESB farið minnkandi.
Evrópusambandið er nú á krossgötum. Leiðtogar sumra aðildarríkja og æðstu embættismenn ESB, segja nauðsynlegt að ESB verði sambandsríki og herveldi, til að ráða við aðsteðjandi vandamál og treysta stöðu þess í samkeppni stórvelda í framtíðinni.
Bókin um ESB er skrifuð fyrir þá sem vilja vita hvernig sambandið starfar og helstu áskoranir þess í dag, einskonar rýniskýrsla og skyldulesning fyrir alla sem vilja vita „hvað er í pakkanum“.
Bókin er 130 blaðsíður og er fáanleg bæði sem kilja og rafbók.
Bókin um ESB fæst á vefslóðinni: https://frostis.is/verslun/
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.