Karlalið ÍBV tekur á móti Akureyri í dag í Eyjum. Leikur liðanna hefst klukkan 13:30 en Eyjamenn töpuðu síðasta leik sínum í deildinni gegn Haukum á útivelli. Akureyri vann hins vegar síðasta leik sinn í deildinni, á heimavelli gegn ÍR en Akureyringar eru engu að síður í 7. og næst neðsta sæti deildarinnar með sex stig. ÍBV er hins vegar í 4. sæti með 10 stig. Róbert Aron Hostert er enn meiddur en allt benti til þess að Theodór Sigurbjörnsson gæti leikið með liðinu í dag.