Takmörkunum á skólastarfi vegna COVID-19 hefur verið aflétt með gildistöku nýrrar reglugerðar um samkomutakmarkanir. Breytingin felur í sér rýmkun á sóttvarnareglum, fjöldatakmörk verða 200 manns og heimilt er að halda skólaskemmtanir í grunn- og framhaldsskólum án nokkurra takmarkana.
Þeir sem þegar eru í sóttkví þurfa ekki að mæta í sýnatöku til að losna og á það einnig við um þá sem áttu að fara í sýnatöku í dag. Þeim sem hafa verið útsettir fyrir smiti verður ekki lengur skylt að sæta smitgát þótt hvatt sé til hennar og þar með fellur jafnframt brott skylda til sýnatöku í lok smitgátar. Reglur um einangrun verða óbreyttar.
Reglur um þá sem koma um landamæri Íslands breytast ekki.
Nýja reglugerðin um takmörkun á samkomum gildir til og með 25. febrúar.
Helstu breytingar á samkomutakmörkunum eru eftirfarandi:
Nánari upplýsingar:
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.