Taktu þátt í mótun nýrrar Sóknaráætlunar Suðurlands
OLYMPUS DIGITAL CAMERA

Tveir íbúafundir verða haldnir í Þekkingarsetrinu við Ægisgötu í dag 4. apríl þar sem íbúum gefst tækifæri til að taka þátt í mótun nýrrar Sóknaráætlunar Suðurlands.

Annars vegar íbúafundur um atvinnumál og nýsköpun í hádeginu verður haldinn kl. 12:00 til 14:00. Í boði verður súpa að hætta Einsa kalda. Síðar í dag kl. 16:00 til 18:00 verður svo íbúafundur um menningarmál og verður þar boðið upp á kaffihressingu.

Niðurstöður íbúafundanna munu, ásamt niðurstöðum annara íbúafunda í landshlutanum, leggja grunn að stefnum landshlutans í málaflokkunum. Niðurstöður íbúafundanna í Vestmannaeyjum verða jafnframt afhentar sveitarfélaginu og kunna þá að nýtast jafnt sveitarfélaginu og landshlutanum í heild í þeim málefnum.

„Það er markmið okkar að þátttaka verði góð svo áhrif og áherslur íbúa komist til skila inn í nýja Sóknaráætlun Suðurlands 2020 til 2024. Með von um góða þátttöku og gott samstarf,” sagði Þórður Freyr Sigurðsson, sviðsstjóri Þróunarsviðs SASS og verkefnastjóri Sóknaráætlunar Suðurlands.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.